Kjartan Ágúst Guðjónsson
| Kjartan Ágúst Guðjónsson f. 12. júní 1944 í Reykjavík.
Faðir: Guðjón Sigurðsson Illugason, skipstjóri í Hafnarfirði, f. 17. nóv. 1917, d. 1. sept. 1982. For.: Illugi Jónsson, húsmaður á Fögrueyri í Reyðarfirði og þurrabúðarmaður í Hafnarnesi í Fáskrúðsfjarðarhr., S-Múl., f. 24. ágúst 1887, d. 1. okt. 1925, og k.h. Sigurlína Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 17. des. 1887, d. 12. okt. 1968. Móðir: Björg Sigþrúður Sigurðardóttir, húsfreyja í Hafnarfirði, f. 16. maí 1918. For.: Sigurður Þorkelsson, bóndi í Njarðvík í Borgarfjarðarhr., N-Múl., f. 7. ágúst 1865, d. 12. nóv. 1923, og k.h. Guðný Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 15. sept. 1877, d. 20. ágúst 1963. Nám: Stúdent frá M.A. 1966. Cand. odont. frá Freie Universität í Berlín 1972. Tannlækningaleyfi 18. jan. 1974. Störf: Keypti tannlækningastofu Jóhanns Finnssonar í Reykjavík 1973 og rak hana frá jan. 1974 til sept. 1978. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Hafnarfirði frá sept. 1978. Félags- og trúnaðarstörf: Formaður stjórnar Íþróttabandalags Hafnarfjarðar um 10 ára skeið. Í stjórn Badmintonfélags Hafnarfjarðar í 2 ár og Frjálsíþróttasambands Íslands í 15 ár. Maki: 20. júlí 1968, Sigríður Sigurðardóttir, f. 1. júní 1947, aðstoðarmaður tannlæknis. For.: Sigurður Sigurðsson (kjörfaðir), kaupmaður í Reykjavík, f. 24. des. 1925, og k.h. (skildu) Jóhanna Bent Guðjónsdóttir, húsfreyja, síðar í Hafnarfirði, f. 4. jan. 1927, d. 31. maí 1995. Börn þeirra: 1) Sigurður, f. 1. sept. 1970, stúdent frá M.R., kennari og kvikmyndagerðarmaður í Reykjavík. Sambýliskona: Kolfinna Baldvinsdóttir, f. 6. okt. 1970, stúdent frá M.R., B.A. í sagnfræði, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV-Sjónvarpi. Þau slitu sambúð. 2) Hanna Björg, f. 30. sept. 1974, stúdent frá Flensborg, nemi í Hafnarfirði. |
Mynd








