Kjartan Ólafsson
| Kjartan Ólafsson f. 27. febr. 1919 á Krosshóli í Svarfaðardalshr., Eyjaf., d. 13. des. 1973 á Seyðisfirði.
Faðir: Ólafur Tryggvi Sigurðsson, bóndi á Krosshóli og í Syðra-Holti í Svarfaðardalshr., Eyjaf., f. 2. mars 1891, d. 2. okt. 1952. For.: Sigurður Ólafsson, bóndi á Krosshóli í Svarfaðardal, f. 16. okt. 1860, d. 17. júlí 1926, og k.h. Júlía Runólfsdóttir, húsfreyja, f. 12. júlí 1868, d. 15. febr. 1951. Móðir: Kristjana Jónsdóttir, húsfreyja á Krosshóli og í Syðra-Holti í Svarfaðardalshr., Eyjaf., f. 1. júlí 1882, d. 25. febr. 1970. For.: Jón Halldórsson, bóndi og smáskammtalæknir á Hofsá, Skeggstöðum og í Klaufnabrekknakoti í Svarfaðardal, f. 6. mars 1821, d. 17. febr. 1906, og Helga Guðmundsdóttir, bústýra Jóns, f. 18. des. 1847, d. 24. júní 1920. Nám: Stúdent frá M.R. 1942. Cand. med. frá H.Í. 1952. Cand. odont. frá H.Í. 1957. Tannlækningaleyfi 31. maí 1957. Almennt lækningaleyfi 6. júní 1957. Störf: Aðstoðarlæknir héraðslæknisins í Blönduóshéraði í júní 1952. Námskandídat á St. Jósefsspítala frá nóv. 1952 til okt. 1953 og á fæðingardeild Landspítalans í apríl 1954. Læknir við ameríska sjúkrahúsið á Keflavíkurflugvelli frá maí 1954 til nóv. 1956 samhliða tannlæknanámi. Læknir og tannlæknir á Seyðisfirði frá nóv. 1957 til æviloka. Jafnframt aðstoðarlæknir héraðslæknisins í Seyðisfjarðarhéraði frá febr. 1962 til júní 1964. Héraðslæknir þar frá okt. 1968 til æviloka. - Dvaldi í Kaupmannahöfn veturinn 1959-60 og starfaði á tannlækningastofu við Rigshospitalet og jafnframt á heyrnardeild við Militærhospitalet í þrjá mánuði. Félags- og trúnaðarstörf: Bæjarfulltrúi á Seyðisfirði 1962-73. Maki: 17. júní 1949, Klara Kristinsdóttir, f. 21. okt. 1922, hjúkrunarpróf frá Hj.Í. 1946, hjúkrunarfræðingur. For.: Kristinn Sophus Pálmason, vélstjóri á skútum og vélbátum, síðar starfsmaður Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hf. í Reykjavík, f. 18. sept. 1897, d. 26. maí 1965, og k.h. Einbjörg Einarsdóttir, barnakennari og húsfreyja, f. 24. febr. 1902, d. 20. des. 1995. Börn þeirra: 1) Þorsteinn Svörfuður, f. 16. febr. 1950, tannsmiður í Reykjavík. Maki: Hafdís Guðmundsdóttir, f. 21. júní 1960, sjúkraliði. 2) Ólafur Kristinn, f. 6. jan. 1954, verkstjóri á Seyðisfirði. Maki: Ólöf Hulda Sveinsdóttir, f. 27. nóv. 1954, formaður Verkalýðsfélagsins Fram. 3) Þórunn Sólveig, f. 26. okt. 1955, starfsmaður Pósts og síma hf. á Akranesi. Maki: Friðrik Alfreðsson, f. 7. júlí 1953, rafeindavirki hjá Pósti og síma hf. |
Mynd








