Kurt Sonnenfeld
| Kurt Gustav Sonnenfeld f. 3. ágúst 1909 í Köln í Þýskalandi, d. 28. febr. 1994 á Akureyri.
Faðir: Sigmund Sonnenfeld, kaupmaður í Köln og Berlín í Þýskalandi, f. 1. jan. 1869, d. 27. des. 1945. For.: Adolf Sonnenfeld, kornmyllubóndi í Þýskalandi, og k.h. Jenny Sonnenfeld, húsfreyja. Móðir: Meta Sonnenfeld, f. Schenck, húsfreyja í Köln og Berlín í Þýskalandi, f. 2. nóv. 1875, d. 28. sept. 1958 (á Akureyri). For.: Gustav Schenck, skógarvörður í Þýskalandi, og kona hans (nafn óþekkt). Nám: Stúdent frá Luisenstädtische Oberrealschule í Berlín 1931. Cand. odont. frá Universität Berlin 1935. Takmarkað tannlækningaleyfi (bundið við Siglufjörð) 25. maí 1940. Tannlækningaleyfi 10. mars 1947. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Jóni Benediktssyni í Reykjavík frá 5. sept. 1935 til 30. sept. 1940. Tannlæknir á Siglufirði frá 1. okt. 1940 til 30. sept. 1945. Rak eigin tannlækningastofu á Akureyri frá okt. 1945. Skólatannlæknir við Barnaskóla Akureyrar í nokkur ár. - Vararæðismaður Vestur-Þýskalands 1954-80. Félags- og trúnaðarstörf: Í taxtanefnd TFÍ 1941-42. Heiðursmerki: Bundesverdienstkreuz 1. Kl. 1970. Maki: 2. sept. 1939, Elísabeth Sonnenfeld, f. Ulrich, f. 27. mars 1899, d. 4. nóv. 1993, ljósmyndari og húsfreyja. For.: August Ulrich, kennari í Goslar í Þýskalandi, og k.h. Martha Ulrich, húsfreyja. Kjördóttir þeirra: Úrsúla Elisabeth, f. 8. okt. 1943, stúdent frá M.A., fulltrúi hjá Veðurstofu Íslands í Reykjavík. Maki I: Kristján Grétar Sigvaldason, f. 17. apríl 1945, cand. mag., kennari við Menntaskólann við Sund. Þau skildu. Maki II: Jón Kristinsson, f. 19. des. 1944, búfræðingur, vélfræðingur. |
Mynd








