Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Geir R. Tómasson

Geir Reynir Tómasson f. 24. júní 1916 í Miðhúsum í Hvolhr., Rang.

Faðir: Thomas Thomassen, múrari og útvegsbóndi á Nesi í Norðfirði, S-Múl., f. 21. okt. 1878, d. 6. febr. 1935. For.: Thomas Henrikssen, útvegsbóndi í Kjollefjordnæs í Noregi, f. 1832, dd. ókunnur, og k.h. Marit Henrikssen, húsfreyja, f. 1836, dd. ókunnur.

Móðir: Kristín Hansdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 8. mars 1878, d. 11. ágúst 1971. (Thomas og Kristín voru ekki hjón.) For.: Hans Hansson, f. 16. des. 1825, d. 3. jan. 1891, og Guðrún Jónsdóttir (frá Markarskarði), þá vinnukona í Garðsauka í Hvolhr., síðast í Múlakoti í Fljótshlíðarhr., Rang., f. 23. júlí 1839, d. 6. febr. 1924.

Nám: Stúdent frá M.R. 1937. Cand. odont. frá Universität zu Köln í Þýskalandi 1941. Doktorspróf í tannlækningum frá sama skóla 1942. Tannlækningaleyfi 18. júlí 1945. Námsferðir m.a. til Svíþjóðar, Danmerkur, Þýskalands og Englands.

Störf: Aðstoðartannlæknir hjá dr. Carl Wellmann í Köln í tæp tvö ár, 1941-43. Starfaði sem héraðstannlæknir í Västerbottenslän og á Skáni í Svíþjóð í rúm tvö ár frá júlí 1943 til 1945. Kom til Íslands 1945 og vann þá sem aðstoðartannlæknir hjá Matthíasi Hreiðarssyni í tæpt ár. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 1. júlí 1946. - Fór árlega næstu tíu árin í tannlæknaferðir til Stykkishólms að beiðni þáv. landlæknis.

Félags- og trúnaðarstörf: Í nefnd "sem kæmi betra skipulagi á greiðslur" 1945-46. Í stjórn (meðstjórnandi) TFÍ 1949-53 og 1957-59, varaformaður 1963-65 og formaður 1965-68. Fulltrúi TFÍ á fundum Tannlæknafélaga Norðurlanda. Fulltrúi TFÍ á tannlæknaþingi í Helsinki 1949 og í Köln 1962. Í samninganefnd við tannsmiðafélagið 1949-55. Formaður lyfjanefndar TFÍ 1950-74. Ritstjóri Árbókar TFÍ 1952-54 og 1955-60. Í skemmtinefnd TFÍ 1952-57, í taxtanefnd 1952-55 og í lyfjanefnd 1952-74. Í stjórn Europäische Arbeitsgemeinschaft für Zahnärztliche Arzneimittel (E.A.Z.A.). Í bílaúthlutunarnefnd 1955-59. Formaður stjórnar Innkaupasambands tannlækna, Dentalíu hf., frá stofnun 24. júní 1957 til 1961. Í gerðardómi TFÍ 1957-61 og 1976-92. Í stjórn Styrktarsjóðs TFÍ 1959-63. Í stjórn Vísindasjóðs TFÍ 1968-73. Forseti Skandinavíska tannlæknafélagsins 1969-73. Forseti norræna tannlæknaþingsins sem haldið var í Reykjavík í fyrsta sinn 1972. Formaður Íslandsdeildar Skandinavíska tannlæknafélagsins til ársloka 1978. Í vara- og aðalstjórn Sálarrannsóknafélags Íslands 1978-82, forseti þess 1987-88. Í ritnefnd Tannlæknatals 1982-92. Ritari í félaginu Alexander von Humboldt á Íslandi frá 1984. Fulltrúi TFÍ við stofnun Samtaka heilbrigðisstétta á Íslandi.

Ritstörf: Die Behandlung der Mundschleimhauttuberkulose (doktorsritgerð), útg. af Kölnarháskóla 1942; Almenn munnhirða og Kariesprophylax, Árbók TFÍ, 1949; Narcose í sambandi við munnaðgerðir, sst. 1954; Ataraxia, nýr flokkur róandi lyfja, sst. 1960; Andartak á eilífðarbraut, Morgunn, sumarhefti 1982; Ný aðferð til rannsókna og lækninga, sst., vetrarhefti 1982. - Hefur samið spurninga- og rannsóknarlista á ensku og íslensku varðandi athuganir á yfirskilvitlegum lækningum sem voru m.a. teknir til athugunar á heimsmóti spíritista í Englandi 1981.

Viðurkenningar: Handhafi þýsku heiðursorðunnar Das Verdienstkreuz des Verdienstordens der Bundesrepublik Deutschland. Kjörinn heiðursfélagi Tannlæknafélags Íslands 12. apríl 1985.

Maki: 12. mars 1943, María Elfriede Tómasson, f. 26. júlí 1921, snyrtifræðingur og húsfreyja. For.: Ernst Bell, stórkaupmaður í Köln í Þýskalandi, f. 30. júlí 1886, d. 30. sept. 1957, og k.h. María Bell, f. Regel, húsfreyja, f. 10. júlí 1891, d. 9. febr. 1952.

Synir þeirra: 1) Reynir Tómas, f. 13. maí 1946, dr. med. og prófessor í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp, forstjóri kvensjúkdóma- og fæðingardeildar Landspítalans. Maki: Steinunn Jóna Sveinsdóttir, f. 31. júlí 1945, meinatæknir. 2) Ernst Elmar, f. 25. júlí 1948, tannlæknir í Mosfellsbæ. Maki: Sigríður Jónsdóttir Hjaltested, f. 28. mars 1952, tannsmiður. 3) Gunnar Kristinn, f. 27. okt. 1949, nemi í þýsku við H.Í.

Skyldleiki/tengdir: Elmar Geirsson (sonur).

eynir Tómasson f. 24. júní 1916 í Miðhúsum í Hvolhr., Rang.

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar