Alfred Jörgen Baarregaard
| Alfred Jørgen Baarregaard f. 18. jan. 1909 í Odder á Jótlandi, d. 4. mars 1970 á Ísafirði.
Faðir: Eskild Baarregaard, landpóstur og hljómlistarmaður í Odder á Jótlandi, f. 26. ágúst 1874, d. 4. mars 1944. Móðir: Marie Baarregaard, húsfreyja í Odder á Jótlandi, f. 24. nóv. 1876, d. 29. des. 1950. Nám: Stúdent frá Árósum 1928. Cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn vorið 1931. Tannlækningaleyfi 6. des. 1933. Störf: Aðstoðartannlæknir á tannlækningastofu Jóns Benediktssonar og Ellenar Benediktsson í Reykjavík 1931-34. Rak eigin tannlækningastofu á Ísafirði frá jan. 1934 til æviloka. Gerði samning við bæjarstjórn Ísafjarðar 13. des. 1933 um vísi að skipulögðum skólatannlækningum við barnaskólann þar. Samdi við Sjúkrasamlag Ísafjarðar 1945 um þátttöku þess í greiðslum fyrir tannviðgerðir barna fram að 17 ára aldri. Maki: 25. okt. 1947, Kristín Björg Gunnarsdóttir, f. 10. okt. 1918, húsfreyja, síðar bankastarfsmaður í Reykjavík. For.: Gunnar Kristinsson, vélstjóri og vélgæslumaður í Sólbyrgi á Ísafirði, f. 8. ágúst 1891, d. 25. febr. 1977, og k.h. Elísabet Andrésdóttir, húsfreyja, f. 31. maí 1888, d. 29. maí 1965. Synir þeirra: 1) Gunnar Anker, f. 23. mars 1948, cand. med. frá H.Í., heimilislæknir í Reykjavík. Maki: Katrín Guðmundsdóttir, f. 8. apríl 1949, húsfreyja. 2) Harald, f. 19. okt. 1949, M.Sc. frá Danmarks tekniske Højskole, byggingaverkfræðingur í Reykjavík. Maki: Ingibjörg Bergmundsdóttir, f. 23. sept. 1957, B.A., bókasafnsfræðingur. 3) Björn, f. 29. des. 1950, cand. odont. frá H.Í., tannlæknir í Reykjavík. Maki: Laura Jónsdóttir Bergs, f. 10. júlí 1955, B.A. frá H.Í. Skyldleiki/tengdir: Björn Baarregaard (sonur). |
Mynd








