Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Gísli Einar Árnason

Gísli Einar Árnason f. 23. apríl 1974 á Ísafirði.

Faðir: Árni Traustason, tæknifræðingur og útibússtjóri á Ísafirði, f. 11. febr. 1945. For.:
Trausti Árnason, verslunarmaður og sjómaður á Pat eksfirði, f. 13. okt. 1913, d. 19. maí 1981, og k.h. Sigríður Olgeirsdóttir,húsfreyja, f. 23. sept. 1917, d. 27. sept. 1978.

Móðir: Kristín Jakobína Gísladóttir, sjúkraliði á Ísafirði, f. 13.sept. 1947. For.: Gísli Einar Jóhannes son, bóndi í Skál yjum á Breiða firði, f. 1. sept. 1901, d. 27. jan. 1984, og k.h. Sigurborg
Ólafsdóttir, húsfreyja, f. 26. júlí 1904, d. 7. mars 1984.

Nám: Stúdent frá M.Í. 1994. Cand. odont frá Háskóla Íslands 22. júní 2002. Sérfræðinám í tannrétting um viðUniversity of Rochester, Eastman Dental Center, Department of Orthodontics and Dentofacial Orthopedics, í New York 2005–07, próf þaðan29. júní 2007. — Tannlækningaleyfi 20. sept. 2002. Sérfræðingsleyfi í tannrét ing um íBandaríkjunum 30. júní 2007 og á Íslandi 3. Nóvember 2011

Störf: Starfaði á tannlæknastofu Elínar Sigurgeirsdóttur í Reykjavík sumarið 2001,
einnig aðstoðartannlæknir þar frá júní 2002 til júní 2005. Tannlæknir meðsérfræði próf átannréttingastofu Teits Jónssonar á Akureyri frá sumri 2007.

Félags- og trúnaðarstörf: Í stjórn Skíðasambands Íslands 1997–2000. Í stjórn FÍT 1998–
99. Í ritnefnd Harðjaxls 2000–01.

Ritstörf: Tooth Eros ion and Gastric Reflux Revisited (ásamt Ernu B. Sigurðardóttur),
Harðjaxl, 33. árg., 1:2001, 22–24; Hvernig ná má áreiðanlegum og fagurfræðileg um ár -angri í tannlæking um meðfjölgreina aðferð– Klínískt til felli (ásamt Jóni Ólafi Sigur -jónssyni), Tannlæknablaðið, 24. árg., 1:2006, 27–30; Developmental evaluation ofcranio-facial, skeletal and dental morphology of pre maturely born children (óbirt rann -sóknarverkefni frá 2007).

Íþróttir: Keppti í skíðagöngu fyrir Skíðafélag Ísfirðinga hér á landi og erlend is frá unga
aldri til 1997.Viðurkenning: Ísandsmeistratitlar í skíðagöngu í unglinga- og fullorðins flokkum.Fyrstu verðlaun viðkynningu á rannsóknarverkefninu Developmental evaluation of craniofacial, skeletal and dental morphology of prematurely born children viðtannréttinga- ogkjálkaliðsdeildir Eastman Dental Center í mars 2007.

Maki: 28. sept. 2002, Sigrún María Bjarnadóttir, f. 8. okt. 1975, stúdent frá M.Í. 1995,
B.Sc. í líffræði frá H.Í. 1998, líffræðingur. For.: Bjarni Kristinn Jóhannsson, viðskipta -fræðingur á Ísafirði, f. 8. ágúst 1953, og k.h. Guðrún Karólína Guðmannsdóttir, viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri, f. 11. maí 1953.



Synir þeirra: 1) Egill Bjarni, f. 5. febr. 2001. 2) Einar Árni, f. 8. okt. 2003.


 





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar