Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Gísli Vilhjálmsson


Gísli Vilhjálmsson f. 13. maí 1954 í Reykjavík.



Faðir: Vilhjálmur Hjálmarsson Gíslason, verkstjóri í Keflavík, f. 27. apríl 1933. For.: Gísli Sigurjón Vilhjálmsson, bóndi á Brún í Mjóafjarðarhr., S-Múl., síðar verkamaður í Neskaupstað, f. 17. maí 1891, d. 23. apríl 1971, og k.h. Sveinbjörg Jónína Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 25. nóv. 1901, d. 10. okt. 1996.



Móðir: Nanna Gunnarsdóttir, húsfreyja í Keflavík, f. 28. des. 1935. For.: Gunnar Víglundsson, bóndi í Skógum í Mjóafjarðarhr. og í Sómastaðagerði í Reyðarfjarðarhr., S-Múl., f. 4. júní 1913, d. 24. okt. 1984, og k.h. Ásta Ketilsdóttir, húsfreyja, f. 12. des. 1914.



Nám: Stúdent frá M.H. 1974. Cand. odont. frá H.Í. 1980. Tannlækningaleyfi 27. ágúst 1980. Framhaldsnám við St. Louis University, Department of Orthodontics, í Bandaríkjunum 1980-82, M.Sc. í tannréttingum þaðan 1982. Sérfræðingsleyfi í tannréttingum 16. júní 1988.



Störf: Kennari við Tannsmíðaskóla TFÍ sumrin 1979 og 1980. Starfaði á tannlækningastofu Þórðar E. Magnússonar og Péturs Ólafssonar í Reykjavík frá okt. 1982 og frá sama tíma sem aðjúnkt í tannréttingum við tannlæknadeild Háskóla Íslands. Skólatannlæknir hjá Reykjavíkurborg jan.-sept. 1983. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá jan. 1984. - Stundakennari í röntgenfræðum við námsbraut aðstoðarfólks tannlækna frá 1991.



Félags- og trúnaðarstörf: Formaður stjórnar Félags íslenskra tannlæknanema 1978-79. Fulltrúi tannlæknanema í kennslunefnd tannlæknadeildar H.Í. 1977-80. Formaður félagsheimilisnefndar TFÍ 1984-86. Í stjórn Félags sérmenntaðra tannlækna 1986-90. Ritari í stjórn Tannréttingafélags Íslands frá 1988. Í samninganefnd við tannsmiði og aðstoðarfólk 1990-96. Í stjórn Lífeyrissjóðs tannlækna 1995-97. Í stjórn Félags ungra tannlækna frá 1996.



Viðurkenning: Hlaut Marshalls-viðurkenningu frá St. Louis University Orthodontic Alumni Association fyrir bestan árangur í tveggja ára framhaldsnámi í tannréttingum.



Ritstörf: The Effects of Vestibular Shields on Maxillary Lateral Growth in the Albino Rat (mastersritgerð), St. Louis University 1982. Greinar um kennslumál við tannlæknadeild H.Í. í Harðjaxli 1976-79.



Maki: 22. apríl 1978, Kristín Jónsdóttir, f. 31. ágúst 1955, stúdent frá V.Í. 1975, húsfreyja. For.: Jón Guðnason, múrari í Reykjavík, f. 31. okt. 1920, og k.h. Stefanía Sigurjónsdóttir, húsfreyja, f. 11. maí 1918.



Börn þeirra: 1) Vilhjálmur, f. 27. maí 1983. 2) Anna Ýr, f. 11. ágúst 1986. 3) Sindri Freyr, f. 30. mars 1993.





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar