Baldvin Gunnar Sigurðsson Ringsted
| Baldvin Gunnar Sigurðsson Ringsted f. 23. okt. 1914 á Kljáströnd í Höfðahverfi, Grýtubakkahr., S-Þing., d. 27. des. 1988 á Akureyri.
Faðir: Sigurður Gísli Jóhannsson Ringsted, skipstjóri á Kljáströnd í Höfðahverfi, Grýtubakkahr., S-Þing., f. 1. jan. 1880, d. 30. nóv. 1950. For.: Jóhann Sigurður Ringsted, sjómaður á Seyðisfirði, f. 16. des. 1846, d. 11. okt. 1886, og k.h. Sigríður Gísladóttir, húsfreyja, f. 22. okt. 1845, d. 22. sept. 1923. Móðir: Guðríður Gunnarsdóttir, húsfreyja á Kljáströnd í Höfðahverfi, Grýtubakkahr., S-Þing., f. 6. sept. 1881, d. 9. jan. 1967. For.: Ólafur Gunnar Gunnarsson, útvegsbóndi í Görðum í Höfðahverfi, f. 12. maí 1848, d. 1. des. 1927, og k.h. Anna Petrea Pétursdóttir Hjaltested, húsfreyja, f. 30. ágúst 1846, d. 27. nóv. 1937. Nám: Stúdent frá M.A. 1938. Cand. odont. frá H.Í. 1947. Tannlækningaleyfi 27. ágúst 1947. Störf: Keypti tannlækningastofu Gunnars Hallgrímssonar á Akureyri, þegar hann fórst í Héðinsfirði 1947, og tók við henni í júní 1947. Starfandi tannlæknir á Akureyri 1947-86. Félags- og trúnaðarstörf: Starfaði í Frímúrarareglunni 1962-88. Í stjórn (meðstjórnandi) Tannlæknafélags Norðurlands 1978-79. Ritstörf: Ritgerð um tennur og tannhirðu, Heimili og Skóli, Ak. 1948. Maki: 28. sept. 1946, Ágústa Sigurðardóttir, f. 3. ágúst 1925, húsfreyja. For.: Sigurður Magnússon, smiður og hreppstjóri í Stykkishólmi, f. 4. apríl 1880, d. 7. maí 1984, og k.h. Ingibjörg Daðadóttir, húsfreyja, f. 19. maí 1884, d. 30. des. 1987. Börn þeirra: 1) Gunnur, f. 12. febr. 1947, tannsmiður, fulltrúi á skrifstofu Háskólans á Akureyri. Maki: Sigurður Hlöðversson, f. 18. maí 1948, tæknimaður hjá Stöð 2 á Akureyri. Þau skildu. 2) Sigurður, f. 11. okt. 1948, sjómaður á Ísafirði. Sambýliskona: Guðný Kristjánsdóttir, f. 3. sept. 1952, fulltrúi. 3) Gunnar, f. 11. nóv. 1952, tónlistarkennari í Borgarnesi. Maki: Jenný Lind Egilsdóttir, f. 14. febr. 1959, snyrtifræðingur. 4) Ingibjörg, f. 26. sept. 1955, tölvuritari á Akureyri. Maki: Valmundur Pétur Árnason, f. 17. nóv. 1956, matreiðslumeistari. 5) Guðbjörg, f. 12. jan. 1957, myndlistarmaður á Ísafirði. Maki: Kristján Þór Júlíusson, f. 15. júlí 1957, bæjarstjóri. 6) Baldvin, f. 5. apríl 1963, framhaldsskólakennari og tónlistarmaður. Sambýliskona: Katrín Ólafsdóttir, f. 24. sept. 1973. |
Mynd








