Grétar Björn Sigurðsson
Grétar Björn Sigurðsson f. 27. jan. 1958 á Húsavík, S-Þing. Faðir: Sigurður Héðinsson, skipstjóri í Hafnarfirði, f. 5. apríl 1937. For.: Héðinn Maríusson, formaður og útvegsbóndi á Húsavík, S-Þing., f. 18. des. 1899, d. 22. mars 1989, og k.h. Helga Jónsdóttir, húsfreyja, f. 16. febr. 1897, d. 1. júní 1989. Móðir: Ólafía Sigurbjörnsdóttir, húsfreyja í Hafnarfirði, f. 26. sept. 1938. For.: Sigurbjörn Jónsson, skipstjóri og verkstjóri á Akranesi, síðar í Sandgerði, f. 26. ágúst 1907, d. 1. febr. 1987, og k.h. Margrét Berentsdóttir, húsfreyja, f. 27. des. 1902, d. 1. febr. 1956. Nám: Stúdent frá Flensborg 1978. Cand. odont. frá H.Í. 1985. Tannlækningaleyfi 22. júlí 1985. Störf: Tannlæknir í Ólafsvík frá ágúst 1985 til sept. 1989. Starfaði sjálfstætt hjá Sif Matthíasdóttur í Reykjavík frá okt. 1989 til jan. 1994. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Kópavogi frá febr. 1994. - Þjálfari körfuknattleiksliðs í Ólafsvík 1987-88. Myndskreytti Clinical and Oral Microbiology (eftir W.P. Holbrook og P.W. Ross), Blackwell Scientific Publications, Oxford 1984, og einnig tvö tölublöð Harðjaxls, 1983-84. Sambýliskona: Júní 1988, Ásdís Þórkatla Hafsteinsdóttir, f. 11. jan. 1962, gullsmiður. For.: Guðmundur Hafsteinn Sigurðsson, sendibifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 8. júlí 1935, og fyrri k.h. (skildu) Helga María Guðmundsdóttir, húsfreyja í Kópavogi, f. 24. mars 1935. Börn þeirra: 1) Iðunn Ósk, f. 13. ágúst 1990. 2) Sindri Snær, f. 8. apríl 1994. 3) Atli Þór, f. 2. jan. 1997. Skyldleiki/tengdir: Guðríður Anna Kristjánsdóttir (þremenningur), Héðinn Sigurðsson (bróðir), Jakob Jónsson (þremenningur), Jónas Geirsson (maki tvím. við G.B.S.). |
Mynd








