Bergljót Magnúsdóttir Smith
| Bergljót Magnúsdóttir Smith f. 6. febr. 1912 í Reykjavík.
Faðir: Magnús Sigurðsson, yfirréttarmálflutningsmaður og bankastjóri Landsbanka Íslands í Reykjavík, f. 14. júní 1880, d. 27. okt. 1947. For.: Sigurður Magnússon, kaupmaður í Bráðræði í Reykjavík, f. 6. maí 1850, d. 8. ágúst 1901, og k.h. Bergljót Árnadóttir, húsfreyja, f. 30. mars 1856, d. 1. ágúst 1915. Móðir: Ástríður Magnúsdóttir Stephensen, húsfreyja í Reykjavík, f. 15. jan. 1884, d. 25. apríl 1933. For.: Magnús Magnússon Stephensen, lögfræðingur, landshöfðingi í Reykjavík, f. 18. okt. 1836, d. 3. apríl 1917, og k.h. Elín Jónasdóttir Stephensen, f. Thorstensen, húsfreyja, f. 13. ágúst 1856, d. 15. júlí 1933. Nám: Stúdent frá M.R. 1930. Fór sumarið 1930 til Genfar í Sviss til að hefja nám við tannlæknaháskólann þar. Hvarf frá þeim áformum og sótti um inngöngu við Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn, cand. odont. þaðan 1933. Tannlækningaleyfi á Íslandi 5. nóv. 1934 og í Danmörku 31. okt. 1939. Störf: Skólatannlæknir við Austurbæjarskólann í Reykjavík 1933-34. Rak tannlækningastofu í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum frá júlí 1935 til ágúst 1938 og í Kaupmannahöfn frá 1. jan. 1941 til 1. jan. 1985. Félags- og trúnaðarstörf: Í innkaupanefnd, taxtanefnd og fræðslu- og útbreiðslunefnd TFÍ um tíma. Bókavörður TFÍ 1937-40. Maki: 7. apríl 1934, Finn Smith, f. 3. nóv. 1910, stúdent í Khöfn 1929, cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn 1933, tannlæknir. For.: Christian Smith, búsettur í Kaupmannahöfn og síðar (frá 1914) í Bandaríkjunum, f. 18. júní 1878, d. í júní 1941, og k.h. Gerda Smith, húsfreyja, f. 16. nóv. 1884, d. 10. sept. 1975. Börn þeirra: 1) Ásta, f. 22. nóv. 1934, tannlæknir í Kaupmannahöfn. Maki I: Mogens Wæver, tannlæknir. Þau skildu. Maki II: John Rasmussen, f. 21. okt. 1926, forstjóri. 2) Magnús Finn, f. 24. jan. 1940, tannlæknir í Kaupmannahöfn. Maki: Margaret Ulla Smith, f. Gregers Thomsen, f. 26. maí 1947, tannlæknir. 3) Jan, f. 19. ágúst 1942, d. 1984, efnafræðingur og læknir í Kaupmannahöfn. Skyldleiki/tengdir: Ásta Smith (dóttir), Finn Smith (maki), Magnús Finn Smith (sonur), Ólafur Björgúlfsson (maki systurdóttir B.S.). |
Mynd








