Grímur M Björnsson
Grímur Mikael Björnsson f. 7. mars 1924 á Akureyri. Faðir: Björn Grímsson, verkamaður, kennari, forstjóri Pöntunarfélags verkalýðsins á Akureyri og Húsavík, verslunarmaður á Akureyri og í Reykjavík, f. 15. maí 1891, d. 26. mars 1986. For.: Grímur Björnsson, bóndi á Helgustöðum í Fljótum, Holtshr., Skag., og síðar á Möðruvöllum í Héðinsfirði, Hvanneyrarhr., Eyjaf., f. 8. júlí 1859, d. 19. febr. 1906, og k.h. Ásta Gísladóttir, húsfreyja, f. 17. nóv. 1853, d. 11. febr. 1904. Móðir: Vilborg Soffía Lilliendahl, húsfreyja á Akureyri og víðar, f. 15. jan. 1888, d. 13. sept. 1974. For.: Carl Pétur Jakobsson Lilliendahl, útvegsbóndi, hafnsögumaður og verslunarmaður í Austur-Skálanesi í Vopnafjarðarhr., N-Múl., f. 31. okt. 1848, d. 24. maí 1899, og k.h. Þóra Jakobína Nielsdóttir Beck, húsfreyja, f. 7. febr. 1854, d. 26. apríl 1898. Nám: Stúdent frá M.A. 1947. Loftskeytapróf frá Loftskeytaskólanum í Reykjavík 1948. Cand. odont. frá H.Í. 1952. Tannlækningaleyfi 6. júní 1952. Störf: Tannlæknir á Akranesi 1952-67 og í Reykjavík frá 1967. Annaðist tannlækningar skólabarna við Barnaskólann í Borgarnesi 1955-58. Félags- og trúnaðarstörf: Í stjórn Stúdentafélagsins á Akranesi 1961-65. Í skemmtinefnd TFÍ 1966-69. Í stjórn styrktarsjóðs TFÍ 1970-77. Í stjórn (meðstjórnandi) TFÍ 1974-76. Í samninganefnd við tannsmiði og aðstoðarfólk 1977-78. Endurskoðandi TFÍ 1978-82. Maki: 6. júní 1949, Margrét Oddgeirsdóttir, f. 11. jan. 1923, húsfreyja og tannlæknaritari. For.: Oddgeir Jóhannsson, útvegsbóndi á Grenivík í Grýtubakkahr., S-Þing., f. 23. okt. 1880, d. 22. júní 1971, og k.h. Aðalheiður Kristjánsdóttir, húsfreyja, f. 9. nóv. 1885, d. 9. febr. 1977. Börn þeirra: 1) Ragnheiður Þóra, f. 6. júní 1948, sérkennari á Akranesi. Maki: Hallur Páll Jónsson, f. 11. nóv. 1948, B.A., kennari, starfsmannastjóri Félagsmálastofnunar Reykjavíkur. Þau skildu. Sambýlismaður: Jens Benedikt Baldursson, f. 19. apríl 1952, B.A., sagnfræðingur og framhaldsskólakennari. 2) Björn, f. 27. júlí 1950, flugvirki, tannsmíðameistari og kennari við Tannsmíðaskóla Íslands. Maki: Ólöf Jóna Jensdóttir, f. 14. maí 1952, skrifstofumaður. 3) Lísbet, f. 2. júlí 1951, B.S. meinatæknir í Reykjavík. Sambýlismaður: Arthúr Björgvin Bollason, f. 16. sept. 1950, mag. art., rithöfundur. Þau slitu sambúð. Maki: Albert Guðmundur Einarsson, f. 15. jan. 1949, fv. skólameistari í Neskaupstað. Þau skildu. 4) Vilborg Soffía, f. 10. maí 1954, leikskólakennari í Kópavogi. 5) Margrét Rósa, f. 29. jan. 1960, tannlæknir í Reykjavík. Maki: Óskar Eyvindur Arason, f. 17. júní 1957, rafeindavirkjameistari. 6) Magnús Orri, f. 30. des. 1964, rafiðnfræðingur og iðnrekstrarfræðingur í Kópavogi. Sambýliskona: Margrét Guðmundsdóttir, f. 7. okt. 1970, hjúkrunarfræðingur. 7) Guðrún, f. 30. des. 1964, d. 1. jan. 1965. Skyldleiki/tengdir: Margrét Rósa Grímsdóttir (dóttir). |
Mynd








