Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Droplaug Sveinbjörnsdóttir

Droplaug Sveinbjörnsdóttir f. 8. júlí 1957 í Hafnarfirði, d. 13. sept. 1993 í Reykjavík.
Faðir: Sveinbjörn Björnsson, prófessor í jarðeðlisfræði og rektor Háskóla Íslands, búsettur í Kópavogi, f. 28. okt. 1936. For.: Björn Sigfússon, dr. phil., háskólabókavörður í Reykjavík, f. 17. jan. 1905, d. 10. maí 1991, og k.h. Droplaug Sveinbjörnsdóttir, húsfreyja, f. 28. maí 1912, d. 20. júlí 1945.
Móðir: Guðlaug Einarsdóttir, bókari í Kópavogi, f. 7. jan. 1936. For.: Einar Jónsson, bifvélavirki í Reykjavík, f. 31. ágúst 1902, d. 20. febr. 1957, og k.h. Kristín Pálsdóttir, húsfreyja, f. 31. maí 1903, d. 23. des. 1983.
Nám: Stúdent frá M.H. 1976. Cand. odont. frá H.Í. 1985. Tannlækningaleyfi 22. júlí 1985.
Störf: Tannlæknir á Tannlæknastofunni Síðumúla 25 frá júní 1985 til jan. 1989 og frá sept. 1990 til apríl 1991. Stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands sept.-des. 1991.
Félags- og trúnaðarstörf: Í ritstjórn Harðjaxls og tók virkan þátt í félagsstörfum tannlæknanema á námsárunum.
Maki: 17. ágúst 1985, Þorvaldur Bragason, f. 2. ágúst 1956, stúdent frá M.R. 1976, B.Sc. í landafræði og bókasafnsfræði frá H.Í. 1979, landfræðingur og deildarstjóri hjá Landmælingum Íslands. For.: Bragi Þórðarson, prentari, bókaútgefandi á Akranesi, f. 24. júní 1933, og k.h. Elín Þorvaldsdóttir, skrifstofustjóri, f. 18. júlí 1935.
Dóttir þeirra: Birna, f. 2. ágúst 1989.



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar