Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Guðbjartur Hólm MSc

Guðbjartur Hólm Guðbjartsson f. 4. ágúst 1961 í Reykjavík.


Faðir: Guðbjartur Hólm Guðbjartsson, bóndi í Króki í Kjalarneshr., Kjós., f. 7. des. 1917, d. 6. nóv. 1989. For.: Guðbjartur Guðmundsson, vélstjóri í Tungu í Valþjófsdal, Mosvallahr., V-Ís., f. 11. júní 1891, d. 12. des. 1926, og Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja á Litla-Ási í Kjalarneshr., Kjós., síðar í Reykjavík, f. 12. maí 1895, d. 30. júlí 1979.


Móðir: Gunnleif Kristín Sveinsdóttir, húsfreyja í Króki í Kjalarneshr., Kjós., f. 14. okt. 1921, d. 27. jan. 1973. For.: Sveinn Andrés Sveinbjörnsson, bóndi á Mælifellsá og Ytri-Mælifellsá á Efribyggð, Lýtingsstaðahr., Skag., f. 18. febr. 1884, d. 11. júní 1931, og k.h. Steinunn Ingunn Sveinsdóttir, húsfreyja, f. 30. sept. 1882, d. 8. nóv. 1943.


Nám: Stúdent frá F.B. 1981. Cand. odont. frá Oslóarháskóla 1990. Tannlækningaleyfi á Íslandi 18. okt. 1990 og í Þýskalandi 1993.


Störf: Aðstoðartannlæknir í Þýskalandi 1990-92. Hefur rekið tannlækningastofu ásamt eiginkonu sinni og tengdaföður í Bocholt í Þýskalandi frá 1993.


Maki: 16. ágúst 1989, Christina Rage, f. 5. maí 1964, tannlæknir. For.: Egil Rage, dr. med. dent., tannlæknir í Bocholt í Þýskalandi, f. 28. maí 1939, og k.h. Ulrike Rage, húsfreyja, f. 3. jan. 1942.


Börn þeirra: 1) Anna Rage, f. 18. febr. 1992. 2) Nicolas Rage, f. 6. des. 1994.


Skyldleiki/tengdir: Þórður Birgisson (mágur).




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar