Ágúst J. Gunnarsson
Ágúst Jóhann Gunnarsson f. 3. júní 1963 í Reykjavík. Faðir: Gunnar Hrafn Ágústsson, byggingaverkfræðingur, deildarstjóri hjá Siglingamálastofnun Íslands, búsettur í Hafnarfirði, f. 18. okt. 1931, d. 23. des. 1990. For.: Sigfús Ágúst Böðvarsson, landmælingamaður, forstjóri Landmælinga Íslands í Reykjavík, f. 3. jan. 1906, d. 27. jan. 1997, og k.h. Sigríður Sveinbjörnsdóttir, húsfreyja, f. 12. júní 1909, d. 24. des. 1977. Móðir: Anna Ágústsson, f. Baur, hárgreiðslumeistari í Hafnarfirði, f. 5. mars 1932. For.: Johann Baur, flutningamaður í Memmingen í Þýskalandi, f. 16. sept. 1882, d. 5. maí 1961, og k.h. Veronika Baur, f. Zink, húsfreyja, f. 29. des. 1887, d. 5. ágúst 1971. Nám: Stúdent frá Flensborg 1983. Cand. odont. frá Gautaborgarháskóla 12. jan. 1990. Tannlækningaleyfi í Svíþjóð 5. febr. 1991 og á Íslandi 25. sept. 1991. Störf: Starfaði við tannlækningar í Skene í Svíþjóð frá febr. 1990 til febr. 1991 og í Kinna febr.-ágúst 1991. Starfaði við tannlækningar hjá Kristjáni Þór Víkingssyni á Akureyri frá sept. 1991 til júlí 1995. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Hafnarfirði frá mars 1993. Félags- og trúnaðarstörf: Ritari í stjórn Tannlæknafélags Norðurlands 1992-93. Maki: 30. mars 1996, Rut Jónsdóttir, f. 6. ágúst 1966, stúdent frá F.S. 1986, fil. kand. í þjóðhagfræði frá Gautaborgarháskóla 1991, MB.Aþ frá H.R. 2003, verkefnastjóri hja Baugi group. For.: Jón Sigmundur Þórðarson, bifvélavirki í Ytri-Njarðvík, f. 20. maí 1934, og k.h. Guðríður Stefanía Vilmundsdóttir, húsfreyja, f. 19. des. 1935. Börn þeirra: 1) Gunnar Egill, f. 1. sept. 1992. 2) Marín Lilja, f. 10. febr. 1996. 3) Kári Hrafn, f. 2. mars. 1998 Skyldleiki/tengdir: Guðmundur Á. Björnsson (þremenningur).
|
Mynd








