Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Guðjón Axelsson

Guðjón Axelsson f. 21. okt. 1935 á Stokkseyri.


Faðir: Axel Svanberg Þórðarson, kennari í Reykjavík, f. 21. des. 1904, d. 20. jan. 1995. For.: Þórður Ingvarsson, söðlasmiður á Húsavík, S-Þing., f. 16. maí 1865, d. 1. des. 1927, og k.h. Jónida Þorsteinsdóttir, húsfreyja, f. 8. jan. 1874, d. 16. okt. 1938.


Móðir: Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 29. okt. 1911, d. 21. nóv. 1972. For.: Bjarni Guðmundsson, bóndi í Aldarminni á Stokkseyri, f. 24. júní 1884, d. 3. maí 1966, og k.h. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja, f. 21. jan. 1893, d. 7. ágúst 1974.


Nám: Stúdent frá M.R. 1954. Cand. odont. frá H.Í. í jan. 1960. Tannlækningaleyfi 2. maí 1960. Framhaldsnám í gervitannagerð við University of Alabama, School of Dentistry, í Birmingham í Bandaríkjunum 1960-63 og við Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn 1970-71. Námskeið í tannvegsfræði við University of Alabama, School of Dentistry, í þrjá mánuði 1963. Hefur sótt fjölda námskeiða hér á landi og erlendis. Meistari í tannsmíðaiðn 1982. Sérfræðingsleyfi í tann- og munngervalækningum 12. mars 1987.


Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Skúla Hansen í Reykjavík febr.-ágúst 1960 og í tvo og hálfan mánuð 1961, einnig hjá Birgi Jóh. Jóhannssyni júní-ágúst 1962 og hjá Hauki Clausen í Reykjavík frá apríl 1963 til maí 1964. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 9. júní 1964. Kennari í heilgóma- og partagerð við tannlæknadeild Háskóla Íslands frá jan. 1965. Skipaður prófessor í gervigómagerð við sömu deild 15. des. 1973. - Prófdómari í gervitannagerð og krónu- og brúargerð við tannlæknadeild H.Í. frá 27. maí 1963 til jan. 1965.


Félags- og trúnaðarstörf: Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1965-69. Í kúrsusnefnd TFÍ 1966-69 og 1972-73. Í skólanefnd Tannsmíðaskóla TFÍ 1968-70 og 1979-83. Í taxtanefnd TFÍ 1972-74. Deildarforseti tannlæknadeildar H.Í. skólaárin 1976-78, frá 15. sept. 1986 til 14. sept. 1988 og frá 1996, varadeildarforseti frá 15. sept. 1974 til 14. sept. 1976, frá 15. sept. 1982 til 14. sept. 1984 og frá sept. 1994 til sept. 1996. Formaður kennslunefndar tannlæknadeildar H.Í. 1982-84. Í deildarráði tannlæknadeildar H.Í. 1974-84, 1986-88 og frá 5. sept. 1994. Formaður sérfræðingsnefndar frá 15. sept. 1986 til 14. sept. 1988 og frá sept. 1996. Í stjórn Mannfræðistofnunar Háskóla Íslands frá upphafi til 29. sept. 1994. Aðstoðarritstjóri Acta Odontologica Scandinavica frá jan. 1994. Aðstoðarritstjóri fréttabréfs International College of Prosthodontists í nokkur ár. Félagi í eftirtöldum fagfélögum: Tannlæknafélagi Íslands, Scandinavian Society for Prosthetic Dentistry, European Prosthodontic Association, International College of Prosthodontists, Academy of Osseointegration og í Félagi um réttartannlæknisfræði.


Ritstörf: Heilgómagerð. Klínisk verklýsing (ásamt Sigurði E. Rósarssyni og Svend Richter), fjölrit, 1973; The Deflecting Wrinkle on the Teeth of Icelanders and the Mongoloid Dental Complex (ásamt Pentti Kirveskari), Am. J. Phys. Anthropol., 1977; Sjöundi kúspur á neðrigómsjöxlum Þingeyinga, Harðjaxl, 1978; Sixth and Seventh Cusp on Lower Molar Teeth of Icelanders (ásamt Pentti Kirveskari), Am. J. Phys. Anthropol., 1979; Cusp number and groove pattern of lower molars in Icelanders (ásamt sama), Acta Odontol. Scand., 1981; Torus Mandibularis Among Icelanders (ásamt Björn Hedegård), Am. J. Phys. Anthropol., 1981; Correlations Between Lower Molar Occlusal Traits in Icelanders (ásamt Pentti Kirveskari), Teeth: Form, Function and Evoloution (ritstj. Björn Kurtén), New York, Columbia University Press, 1982, 237-244; Crown size of permanent teeth in Icelanders (ásamt sama), Acta Odontol. Scand., 1983; Merking heilgóma, Tannlæknablaðið, 1984; Crown size of deciduous teeth in Icelanders (ásamt Pentti Kriveskari), Acta Odontol. Scand., 1984; Torus Palatinus in Icelandic Schoolchildren (ásamt Björn Hedegård), Am. J. Phys. Anthropol., 1985; Góð mát - slæm mát, Tannlæknablaðið, 1986; Speciality status in Iceland. ICP Report. A Newsbulletin of the International College of Prosthodontists, 1988; Othopantomographic examination of the edentulous mouth, J. Prosthet. Dent., 1988; Breytingar á tannheilsu Íslendinga 1985-2000. Fyrsti áfangi: Tannheilsa Íslendinga árið 1985 (ásamt Dwight J. Castleberry), TFÍ, Rvík 1988; Réttur ellilífeyrisþega og endurgreiðsla tannlæknakostnaðar (ásamt Einari Ragnarssyni og Sigurgeir Steingrímssyni), Tímarit H.Í., 1988; Fjöldi og ástand tanna ellilífeyrisþega sem voru vistmenn á elliheimilum eða langlegusjúklingar á sjúkrahúsum í Reykjavík (ásamt sömu), Tannlæknablaðið, 1989; Tíðni og áætluð þörf heilgóma hjá ellilífeyrisþegum sem voru vistmenn á hjúkrunar- og dvalarheimilum fyrir aldraða eða langlegusjúklingar á sjúkrahúsum í Reykjavík árið 1984 (ásamt sömu), sst., 1990; Heilgómagerð, klínísk verklýsing (ásamt Svend Richter), Háskólaútgáfa, Rvík 1991; Þrif tanna og heilgóma hjá ellilífeyrisþegum sem voru vistmenn á hjúkrunar- og eða dvalarheimilum fyrir aldraða eða langlegusjúklingar á sjúkrastofnunum í Reykjavík árið 1984 (ásamt Einari Ragnarssyni og Sigurgeir Steingrímssyni), Tannlæknablaðið, 1991; Ellilífeyrisþegar á stofnunum í Reykjavík árið 1984. Tannlæknisheimsóknir, álit á tannlæknisþjónustunni, eigið mat á þörf yfir tannlæknisþjónustu og álit á hugsanlegum breytingum á þjónustu tannlækna og tryggingagreiðslum (ásamt sömu), sst., 1991; Óvæntur fundur á yfirlitsmynd (ásamt Sigurði E. Þorvaldssyni), sst., 1991; Breytingar á tannheilsu Íslendinga 1985-2000. Annar áfangi: Tannheilsa Íslendinga árið 1990 (ásamt Sigrúnu Helgadóttur), Háskólaútgáfa, Rvík 1993; Stærð tannkróna í íslenskum beinagrindum, Tímarit H.Í., 1993; Tannheilsa vistmanna Hjúkrunarheimilisins Skjóls í janúar 1992 (ásamt Höllu Sigurjóns), fjölrituð skýrsla, 1994; Edentulousness in Iceland in 1990. A national questionnaire survey (ásamt Sigrúnu Helgadóttur), Acta Odontol. Scand., 1995; Comparison of oral health data from a self-administered questionnaire and clinical examination (ásamt sömu), Community Dent. Oral Epidemiol., 1995.


Maki: 14. júlí 1962, Sólveig Guðmundsdóttir, f. 21. febr. 1942, kennari. For.: Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og kennari í Reykjavík, f. 18. maí 1909, d. 7. apríl 1972, og k.h. Kristrún Steindórsdóttir, húsfreyja, f. 12. mars 1915.


Dætur þeirra: 1) Kristrún, f. 10. júní 1964, kennari í Reykjavík. Sambýlismaður: Heimir Einarsson, f. 24. nóv. 1959, matreiðslumeistari. 2) Guðbjörg, f. 10. jan. 1966, líffræðingur og kennari í Kópavogi. Sambýlismaður: Sigurður Hilmir Jóhannsson, f. 13. nóv. 1962, líffræðingur. 3) Unnur, f. 21. ágúst 1972, hjúkrunarfræðinemi í Reykjavík. Sambýlismaður: Benedikt Bjarki Ægisson, f. 22. okt. 1970, tannlæknir. 4) Jóhanna, f. 22. júlí 1976.


Skyldleiki/tengdir: Benedikt B. Ægisson (sambýlismaður dóttur).




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar