| Engilbert Dagbjartur Guðmundsson f. 9. ágúst 1909 í Reykjavík, d. 8. nóv. 1986 í Reykjavík. Faðir: Guðmundur Guðmundsson, verkamaður og sjómaður í Reykjavík, f. 29. maí 1864, d. 19. mars 1938. For.: Guðmundur Sveinbjörnsson, verkamaður í Reykjavík, f. 18. apríl 1840, d. 17. jan. 1917, og k.h. Margrét Eiríksdóttir, húsfreyja, f. 23. júní 1844, d. 3. júní 1929. Móðir: Þuríður Egilsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 22. maí 1867, d. 23. jan. 1918. For.: Egill Steindórsson, bóndi í Litlabæ (Egilskoti) í Ölfushr., Árn., f. 18. apríl 1835, d. 9. maí 1908, og k.h. Guðrún Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 6. sept. 1835, d. 16. apríl 1923. Nám: Stúdent frá M.R. 1928. Cand. odont. frá tannlæknadeild Christian-Albrechts-Universität í Kiel í Þýskalandi 1. nóv. 1932. Tannlækningaleyfi 9. febr. 1933. Störf: Rak eigin tannlækningastofu á Akureyri 1933-37 og stundaði jafnframt tannlækningar við barnaskólann þar. Rak eigin tannlækningastofu í Reykjavík 1937-78. Skólatannlæknir í Reykjavík frá okt. 1937 til ágúst 1974. Félags- og trúnaðarstörf: Átti sæti í samninganefnd TFÍ. Endurskoðandi TFÍ 1934-37, 1939-61 og 1964-65. Í nefnd sem fjallaði um kjör skólatannlækna 1945-46. Í skemmtinefnd TFÍ 1946-57. Viðurkenning: Kjörinn heiðursfélagi Tannlæknafélags Íslands í maí 1975. Maki: 22. júní 1933, Ester Ebba Bertelskjöld Jónsdóttir, kjóla- og kápumeistari, f. 3. júlí 1910, d. 25. ágúst 1991. For.: Jón Ólafsson, stýrimaður á Bíldudal, V-Barð., f. 6. febr. 1879, d. 1. apríl 1949, og k.h. Guðrún Magnúsdóttir, húsfreyja og saumakona, f. 16. júní 1878, d. 27. mars 1962. Börn þeirra: 1) Gunnar Jón, f. 23. mars 1934, d. 14. apríl 1976, rafvélavirki, matreiðslumaður í Reykjavík. Maki: Dóra María Aradóttir, f. 9. okt. 1938, húsfreyja. 2) Örn, f. 6. ágúst 1938, flugstjóri í Reykjavík. Maki: Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 10. sept. 1942, húsfreyja. 3) Dagbjört, f. 6. ágúst 1938, d. 23. mars 1939. 4) Ebba Þuríður, f. 18. júlí 1942, vistmaður á Sólheimum í Grímsnesi. 5) Dagbjört Svana, f. 6. jan. 1946, smurbrauðsdama og húsfreyja í Hveragerði. Maki: Thorvald Kjartan Albertsson Imsland, f. 2. febr. 1943, kjötiðnaðarmaður og verkstjóri. 6) Guðrún Erla, f. 6. des. 1949, sjúkraliði í Kaupmannahöfn. Maki: Erling Kirkeby, prentari. Þau skildu. 7) Stúlka, f. 6. des. 1949 (andvana). Skyldleiki/tengdir: Guðný Esther Gunnarsdóttir (bróðurdóttir). |