Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Friðjón Jensson

Friðjón Jensson f. 6. (kbók 7.) jan. 1868 á Hóli í Hvammssveit, Dal., d. 5. júní 1956 á Akureyri.
Faðir: Jens Jónsson, bóndi, hreppstjóri og dannebrogsmaður á Hóli í Hvammssveit, Dal., f. 26. nóv. 1838, d. 5. ágúst 1909. For.: Jón Magnússon, bóndi í Sælingsdalstungu, Ásgarði og Glerárskógum í Hvammssveit, f. 16. okt. 1795, d. 26. ágúst 1863, og fyrri k.h. Ingibjörg Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 19. nóv. 1806, d. 22. júlí 1856.
Móðir: Jóhanna Jónasdóttir, húsfreyja á Hóli í Hvammssveit, Dal., f. 12. jan. 1843, d. 21. jan. 1874 (miðkona Jens). For.: Jónas Jóhannesson, bóndi í Litla-Langadal í Skógarstrandarhr., Snæf., f. 24. des. 1803, d. 21. sept. 1837, og k.h. Ingveldur Jónsdóttir, húsfreyja, síðar á Fremri-Hrafnabjörgum í Hörðudalshr., Dal., f. 7. nóv. 1814, d. 19. jan. 1881. Stjúpfaðir (Jóhönnu): Daníel Kristjánsson, bóndi í Litla-Langadal og síðar á Fremri-Hrafnabjörgum, f. 7. nóv. 1817, d. 21. nóv. 1864.
Nám: Stúdent í Reykjavík 1889. Cand. phil. frá Hafnarháskóla 28. júní 1890 og cand. med. frá Læknaskólanum í Reykjavík 29. júní 1893. Námsferðir 1908-09 og 1921-22 til Kaupmannahafnar (tannlækningar).
Störf: Námsdvöl og störf á Fæðingarstofnuninni (Fødselsstiftelsen) í Kaupmannahöfn 1893-94. Skipaður aukalæknir í 9. aukalæknishéraði frá 14. júní 1894 til febr. 1899, sat fyrst á Grímsstöðum, þá á Staðarhrauni og loks í Vogi. Skipaður héraðslæknir í 17. læknishéraði frá 1. mars til ágúst 1899 og í 15. læknishéraði með aðsetur á Eskifirði frá 7. ágúst 1899 til júní 1913. Starfaði frá 1913 sem læknir og tannlæknir á Akureyri og fékkst eingöngu við tannlækningar eftir 1930.
Félags- og trúnaðarstörf: Átti sæti í sýslunefnd Mýrasýslu. Í hreppsnefnd Eskifjarðarhrepps um tíma og átti jafnframt sæti í skólanefnd. Gæslustjóri útibús Íslandsbanka og síðar Útvegsbanka Íslands á Akureyri.
Maki: 28. apríl 1900, Olga Laura Nicolina Jensson, f. Schiöth, f. 7. des. 1868, d. 14. okt. 1931, söngkennari og húsfreyja. For.: Peter Frederik Hinrich Schiöth, bakarameistari, síðar póstafgreiðslumaður og bankagjaldkeri á Akureyri, f. 14. febr. 1841, d. 6. jan. 1923, og k.h. Anna Cathrine Schiöth, f. Larsen, f. 10. apríl 1846, d. 27. apríl 1921.
Barnlaus.
Skyldleiki/tengdir: Margrét S. Bergmann (F.J. tvím. við föður M.S.B.).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar