Guðmundur Á. Björnsson
Guðmundur Ásgeir Björnsson f. 6. sept. 1962 í Reykjavík. Faðir: Björn Guðmundsson, flugstjóri í Reykjavík, f. 16. júní 1926. For.: Guðmundur Björnsson, búfræðingur, bóndi í Grjótnesi í Presthólahr., N-Þing., f. 14. sept. 1899, d. 6. jan. 1995, og k.h. Þórey Kristín Ólína Böðvarsdóttir, húsfreyja, f. 2. júlí 1904, d. 5. des. 1990. Móðir: Þorbjörg Guðmundsdóttir, starfsmaður hjá Listasafni Íslands í Reykjavík, f. 16. ágúst 1929. For.: Guðmundur Stefánsson, bóndi á Harðbak í Presthólahr., N-Þing., f. 13. júlí 1885, d. 31. maí 1971, og k.h. Margrét Siggeirsdóttir, húsfreyja, f. 12. ágúst 1890, d. 20. nóv. 1978. Nám: Stúdent frá M.S. 1982. Cand. odont. frá H.Í. 1988. Framhaldsnám í munn- og kjálkaskurðlækningum við Oslóarháskóla 1990-94. Tannlækningaleyfi á Íslandi 22. sept. 1988, í Noregi 4. febr. 1991 og í Danmörku 9. sept. 1994. Sérfræðingsleyfi í munn- og kjálkaskurðlækningum í Danmörku 3. apríl 1995, í Noregi 8. des. 1995 og á Íslandi 10. jan. 1996. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Guðmundi Lárussyni í Reykjavík og hjá Árna Jónssyni á Selfossi frá júní 1988 til júní 1989. Tannlæknir í Búðardal frá júní 1989 til ágúst 1990. Stundakennsla við Árósaháskóla og staða við munn- og kjálkaskurðlækningadeild Háskólasjúkrahússins í Árósum frá sept. 1994 til mars 1995. Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Reykjavík frá júní 1994. Ráðgefandi sérfræðingur á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði frá apríl 1995. Hefur jafnframt starfað sem sérfræðingur á einkastofum á Akureyri, í Drammen og Osló. Viðurkenning: Rannsóknarstyrkþegi við Oslóarháskóla frá maí 1995. Maki: 18. mars 1989, Sæunn Gísladóttir, f. 31. des. 1963, próf frá Í.K.Í. 1988, íþróttakennari. For.: Gísli Júlíus Kjartansson, vélstjóri í Reykjavík, f. 22. júlí 1934, og k.h. Júlíana Sigríður Aradóttir, skrifstofumaður, f. 24. júní 1932. Börn þeirra: 1) Gísli Rafn, f. 6. júní 1986. 2) Fanney Þorbjörg, f. 5. maí 1992. Skyldleiki/tengdir: Ágúst Jóhann Gunnarsson (þremenningur).
|
Mynd








