Guðmundur Árnason
Guðmundur Árnason f. 7. apríl 1932 í Reykjavík. Faðir: Árni Guðmundsson, bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 26. mars 1900, d. 18. okt. 1987. For.: Guðmundur Árnason, bóndi á Kambi í Holtahr., Rang., f. 6. sept. 1859, d. 22. júní 1934, og k.h. Guðfinna Sæmundsdóttir, húsfreyja, f. 19. okt. 1859, d. 2. okt. 1939. Móðir: Valgerður Bjarnadóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 4. júlí 1899, d. 13. sept. 1973. For.: Bjarni Þorsteinsson, útvegsbóndi í Hellukoti á Stokkseyri, f. 15. ágúst 1850, d. 21. apríl 1915, og k.h. Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja, f. 3. okt. 1854, d. 14. jan. 1940. Nám: Stúdent frá M.R. 1952. Cand. odont. frá H.Í. vorið 1958. Tannlækningaleyfi 14. júní 1958. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Halli L. Hallssyni í Reykjavík frá júní 1958 til okt. 1959. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá okt. 1959. Félags- og trúnaðarstörf: Í styrktarsjóðsnefnd TFÍ 1964-78. Í aganefnd Körfuknattleikssambands Íslands (K.K.Í.) 1972-82. Gjaldkeri í stjórn TFÍ 1972-74 og aftur 1980-82. Í stjórn Dentex 1972. Í stjórn Dentalíu hf. frá 1973. Endurskoðandi TFÍ 1974-83 og 1985-91. Í taxtanefnd TFÍ 1974-91. Í skemmtinefnd TFÍ 1975-76. Íþróttir: Var í fyrsta landsliði Íslands í körfuknattleik gegn Dönum í Kaupmannahöfn 1959. Maki: 2. maí 1953, Elín Sæbjörnsdóttir, f. 17. mars 1932, stúdent frá M.R. 1952, húsfreyja. For.: Sæbjörn Magnússon, héraðslæknir á Hesteyri við Ísafjarðardjúp og í Ólafsvík, f. 21. sept. 1903, d. 6. febr. 1944, og fyrri k.h. (skildu) Ragnhildur Gísladóttir, húsfreyja, síðar í Reykjavík, f. 1. nóv. 1901, d. 22. maí 1960. Börn þeirra: 1) Hildur, f. 10. okt. 1953, stúdent frá M.R., verslunarstjóri, búsett í Kópavogi. Maki: Rúnar Sigurkarlsson, f. 13. júlí 1952, framkvæmdastjóri. 2) Árni, f. 19. maí 1956, lögfræðingur, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sjómanna, búsettur í Reykjavík. Maki: Margrét Halldórsdóttir, f. 23. mars 1956, röntgentæknir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. 3) Sæbjörn, f. 5. apríl 1961, tannlæknir í Reykjavík. Maki: Auður Elísabet Jóhannsdóttir, f. 6. ágúst 1968, hjúkrunarfræðinemi við H.Í. Skyldleiki/tengdir: Börkur Thoroddsen (mágur), Sæbjörn Guðmundsson (sonur).
|
Mynd








