Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Birgir Pétursson



Birgir Pétursson f. 9. ágúst 1974 í Reykjavík.




Faðir: Pétur Ludvigsson, sérfræðingur í barnalækningum á Seltjarnarnesi, f. 5. okt.1945. For.: Ludvig Leopold Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri og ferðamálastjóri í Reykjavík, f. 17. okt. 1914, d. 24. júní 1990, og k.h. Kristjana Pétursdóttir, húsfreyja, f. 30. ágúst 1918, d. 27. des. 1992.



Móir: Nína Kristín Birgi dóttir, flugfreyja og tækniteiknari á Seltjarnarnesi, f. 10. apr íl 1949. For.: Birgir Guðmundur Frímannsson, byggingaverkfræðingur og forstjóri í Reykjavík, f. 14. apr íl 1926, d. 24. jan. 2001, og k.h. Valdís Ragnarsdóttir Blöndal, leiðsögumaður, f. 17. febr. 1928.



Nám: Stúdent frá Kv.R. 1994. Cand. odont. frá Há kóla Íslands 21. okt. 2006. — Tannlækningaleyfi 28. nóv. 2006.



Starf: Tannlæknir á tannlækningastofu Guðlaugs J. Jóhannssonar í Reykjavík frá 2006.



Félags- og trúnaðarstörf: Formaður Félags íslenskra tannlæknanema 2005–06.



Maki: 22. okt. 2006, Hildigunnur Guðfinnsdóttir, f. 6. júlí 1977, flugfreyja. For.: Guðfinnur Stefán Halldórsson, forstjóri í Reykjavík, f. 21. okt. 1949, og fyrri k.h. (skildu) Sigrún Halldórsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur í Hafnarfirði, f. 12. mars 1950.





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar