Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Guðmundur Hafliðason

Guðmundur Hafliðason f. 31. mars 1945 á Ísafirði.


Faðir: Hafliði Guðmundsson, kennari á Siglufirði, f. 14. febr. 1921, d. 16. maí 1981. For.: Guðmundur Hafliðason, kaupmaður, útgerðarmaður og hafnarvörður á Siglufirði, f. 7. maí 1889, d. 7. okt. 1941, og k.h. Theodóra Pálsdóttir Árdal, húsfreyja, f. 15. nóv. 1885, d. 9 sept. 1958.


Móðir: Þuríður Ólafs Helgadóttir, húsfreyja á Siglufirði, síðar í Reykjavík, f. 26. júní 1921. For.: Helgi Kristján Jónsson, útvegsbóndi á Snæfjöllum í Snæfjallahr. og á Laugabóli í Ögurhr., N-Ís., síðast á Ísafirði, f. 18. ágúst 1872, d. 8. maí 1950, og k.h. Dagbjört Kolbeinsdóttir, húsfreyja, f. 23. júní 1878, d. 20. febr. 1959.


Nám: Stúdent frá M.A. 1966. Cand. odont. frá H.Í. 1973. Tannlækningaleyfi 3. des. 1973.


Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Baldvin Ringsted á Akureyri júní-ágúst 1973, hjá Gunnari Skaptasyni í Reykjavík frá sept. 1973 til maí 1974 og hjá Ólafi G. Karlssyni í Reykjavík frá maí 1974 til sept. 1975. Skólatannlæknir frá sept. 1974 til 1975 og aftur 1982-84. Tannlæknir í Reykjavík frá sept. 1975, leigði í fyrstu af Eyjólfi Busk tannlækni, en hefur síðan rekið eigin tannlækningastofu.


Félags- og trúnaðarstörf: Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1977-81. Í stjórn unglingadeildar knattspyrnudeildar Víkings frá 1992.


Maki: 17. júní 1972, Auður Ingvadóttir, f. 15. okt. 1951, sellóleikari. For.: Ingvi Jóhannes Victorsson, húsgagnasmiður og forstöðumaður í Reykjavík, f. 24. mars 1925, og k.h. Jóhanna Guðrún Kristjónsdóttir, húsfreyja, f. 21. mars 1928.


Börn þeirra: 1) Jóhanna, f. 2. febr. 1982, nemi. 2) Hafliði f. 2. febr. 1982.


Skyldleiki/tengdir: Friðgerður Samúelsdóttir (tvímenningur).




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar