Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Gestur Már Fanndal

Gestur Már Sigurbjörnsson Fanndalf. 6. mars 1972 í Reykjavík.Faðir: Sigurbjörn Gestsson Fanndal, tannsmiður í Reykjavík, f. 17. júní 1948. For.: Gestur Helgi Sigurðsson Fanndal, vélstjóri og kaupmaður á Siglufirði f. 10. júlí 1911, d. 2. des. 1995, og k.h. Guðný Jónína Sigurbjörnsdóttir Fanndal, hjúkrunarfræðingur og tónlistarkennari, f. 4. mars 1913, d. 30. ágúst 2004.Móðir: Hrönn Ágústsdóttir, námsráðgjafi í Reykjavík, f. 17. júní 1948. For.: Ágúst Óskar Sæmundsson, rafvirkjameistari á Seltjarnarnesi, f. 27. ágúst 1911, d. 5. maí 1981, og k.h. Guðn‡ Vilhelmína Karlsdóttir, kaupmaður og húsfreyja, f. 16. apríl 1922.Nám: Stúdent frá M.S. 1992. Cand. odont. frá Háskóla Íslands 23. júní 2001. — Tannlækningaleyfi 27. júlí 2001. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Elínu S. Wang í Reykjavík 2001–02, hjá Erling Ingvasyni á Akureyri og í Þorlákshöfn 2002, hjá Gunnari Helgasyni í Reykjavík 2002, hjá Agli Jónssyni á Akureyri frá júní 2002 til júní 2004, hjá Sveini Ásgeirssyni og Hólmfríði Th. Brynjólfsdóttur í Reykjavík frá febr. 2004.Félags- og trúnaðarstörf: Í kennslunefnd tannlæknadeildar H.Í. 1996–98. Í kjörnefnd Stúdentaráðs H.Í. 1996–97.Sambýliskona I: 10. júlí 1999, Bjartey Sigurðardóttir, f. 18. sept. 1972, forritari, véla- og iðnaðarverkfræðingur. Slitu sambúð 3. júlí 2004. For.: Sigurður Hörður Sigurðsson, tölvunarfræðingur í Reykjavík, f. 8. júní 1945, d. 6. jan. 1986, og k.h. Hólmfríður Bjartmarsdóttir, myndlistarkennari á Sandi II í Aðaldal, S-Þing., f. 3. febr. 1947. Synir þeirra: 1) Ísar Hugi, f. 3. nóv. 2001. 2) Brimar Máni, f. 22. ágúst 2004.Maki II: 11. febr. 2005, Margrét Huld Hallsdóttir, f. 16. mars 1979, stúdent frá F.V.A. 1999, cand. odont. frá H.Í. 2007, tannlæknir. For.: Hallur Páll Helgi Jónsson, B.A., kennari, deildarstjóri mannauðsdeildar Reykjavíkurborgar, f. 11. nóv. 1948, og fyrri k.h. (skildu) Ragnheiður Þóra Grímsdóttir, sérkennari á Akranesi, f. 6. júní 1948. Stjúpfaðir (Margrétar): Jens Benedikt Baldursson, sagnfræðingur, áfangastjóri við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, f. 19. apríl 1952. Seinni k. Halls Páls: Guðrún Ágústa

Bragadóttir, forstöðuþroskaþjálfi í Reykjavík, f. 20. júní 1956.Skyldleiki/tengdir: Grímur M. Björnsson (móðurfaðir maka II), Margrét Rósa Grímsdóttir (móðursystir maka 11), Margrét Huld Hallsdóttir (maki II).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar