Guðmundur Ólafsson
Guðmundur Ólafsson f. 10. jan. 1930 í Reykjavík. Faðir: Ólafur Ágúst Guðmundsson, skósmiður í Reykjavík, f. 22. mars 1894, d. 22. júní 1970. For.: Guðmundur Guðmundsson, sjómaður frá Eyjarhólum í Mýrdal, V-Skaft., síðar í Reykjavík, f. 20. ágúst 1858, d. 1. júlí 1943, og k.h. Margrét Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 1. ágúst 1858, d. 22. júní 1957. Móðir: Steinunn Jónína Þorláksdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 17. sept. 1903, d. 27. febr. 1973. For.: Þorlákur Jón Jónsson, bóndi og organisti í Saurbæ á Vatnsnesi, Þverárhr., V-Hún., síðar á Hvammstanga, f. 24. sept. 1869, d. 2. mars 1929, og k.h. Sæunn Kristmundsdóttir, húsfreyja, f. 21. júní 1877, d. 16. júní 1955. Nám: Stúdent frá M.R. 1950. Cand. odont. frá H.Í. í jan. 1957. Tannlækningaleyfi 8. febr. 1957. Störf: Tannlækningaferð um Vesturland 1957. Aðstoðartannlæknir í Reykjavík hjá Theodór Brynjólfssyni 1957-58, Vali Egilssyni og Hauki Clausen á árunum 1957-59 og hjá Birni Br. Björnssyni 1957-59. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá júlí 1959. Félags- og trúnaðarstörf: Í fræðslunefnd TFÍ 1962-63. Í skemmtinefnd TFÍ 1966-67. Maki: 7. jan. 1956, Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 11. jan. 1936, húsfreyja og ritari á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. For.: Jón Guðni Gunnar Pétursson, vélstjóri í Reykjavík, f. 1. okt. 1895, d. 3. ágúst 1981, og k.h. Guðbjörg Ólafsdóttir, húsfreyja, f. 14. júní 1894, d. 11. apríl 1970. Börn þeirra: 1) Ólafur Ágúst, f. 30. ágúst 1955, rafmagnsverkfræðingur í Reykjavík. 2) Nína Kolbrún, f. 15. jan. 1957, B.Sc. hjúkrunarfræðingur í Reykjavík. Maki: Kristján Kristjánsson, f. 27. maí 1955, tæknifræðingur. 3) Pétur Ingi, f. 27. des. 1959, tæknifræðingur í Reykjavík. Maki: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, f. 12. júlí 1959, sjúkraþjálfari. 4) Bryndís, f. 19. júní 1968, hagfræðingur í Reykjavík. Maki: Gunnar Árnason, f. 4. maí 1969, viðskiptafræðingur. |
Mynd








