Guðmundur Rúnar Ólafsson
Guðmundur Rúnar Ólafsson f. 28. júlí 1956 í Reykjavík. Faðir: Ólafur Kristberg Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og ökukennari í Hafnarfirði, f. 29. maí 1930. For.: Guðmundur Guðmundsson, verkamaður í Hafnarfirði, f. 28. júlí 1900, d. 9. sept. 1991, og k.h. Guðrún Sigurbergsdóttir, húsfreyja, f. 25. sept. 1906, d. 7. jan. 1991. Móðir: Sigurlaug Jónína Jónsdóttir, húsfreyja og ökukennari í Hafnarfirði, f. 25. ágúst 1935. For.: Jón Guðmundsson, bóndi í Vésteinsholti í Haukadal í Dýrafirði, Mýrahr., V-Ís., síðar verkamaður í Hafnarfirði, f. 23. júní 1906, d. 5. júlí 1987, og k.h. Elínborg Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 7. nóv. 1914. Nám: Stúdent frá Flensborg 1976. Cand. odont. frá H.Í. í júní 1983. Tannlækningaleyfi 9. sept. 1983. Störf: Starfaði á tannlækningastofu Einars Magnússonar í Keflavík frá júní 1983 til maí 1985. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Hafnarfirði frá júní 1985. - Stundakennari (heilgóma-, parta-, krónu- og brúargerð) við tannlæknadeild Háskóla Íslands á árunum 1986-89 (ekki samfellt). Félags- og trúnaðarstörf: Gjaldkeri í stjórn Félags íslenskra tannlæknanema 1980-82. Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1981-88. Í stjórn (meðstjórnandi) TFÍ 1988-90. Í gjaldskrárnefnd 1991-94 og í minjasafnsnefnd frá 1992. Maki: 14. júní 1980, Linda Björk Magnúsdóttir, f. 12. ágúst 1956, stúdent frá K.H.Í. 1977 og B.Ed. 1980, húsfreyja og handavinnukennari. For.: Einar Ásgeirsson, skrifstofumaður hjá Flugleiðum hf. í Baltimore í Bandaríkjunum, f. 5. jan. 1934, og Valdís Björgvinsdóttir, húsfreyja og skrifstofumaður í Reykjavík, f. 18. mars 1935. Kjörfaðir (Lindu): Magnús Pétursson, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 28. maí 1937. Synir þeirra: 1) Gylfi Freyr, f. 3. nóv. 1979. 2) Hjalti Þór, f. 14. maí 1983. 3) Birgir Snær, f. 18. sept. 1984. 4) Andri Fannar, f. 26. okt. 1992. |
Mynd








