Guðni M. Óskarsson
Guðni Marinó Óskarsson f. 28. sept. 1941 á Eskifirði. Faðir: Óskar Sigurjón Jónsson Snædal, verkamaður á Eskifirði, f. 6. maí 1917, d. 27. jan. 1986. For.: Jón Halldórsson Snædal, trésmiður á Eskifirði, f. 9. sept. 1877, d. 2. ágúst 1962, og k.h. Ragnhildur Rannveig Einarsdóttir, húsfreyja, f. 19. okt. 1893, d. 28. júlí 1961. Móðir: Sigurbjörg Halldóra Guðnadóttir, húsfreyja á Eskifirði, f. 24. apríl 1917, d. 1. des. 1989. For.: Guðni Jónsson, sjómaður á Eskifirði, f. 19. febr. 1887, d. 23. maí 1929, og k.h. Nathalía María Sofía Kragh, húsfreyja, f. 8. júní 1889, d. 13. jan. 1954. Nám: Stúdent frá M.A. 1961. Cand. odont. frá H.Í. vorið 1967. Tannlækningaleyfi 25. okt. 1967. Störf: Tannlæknir á Húsavík frá júlí 1967 til des. 1970 og á Eskifirði frá jan. 1971. Félags- og trúnaðarstörf: Fulltrúi í bæjarstjórn Eskifjarðar fyrir Alþýðubandalagið 1978-82. Í ýmsum nefndum á vegum bæjarins, m.a. formaður skólanefndar Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar, formaður nefndar um nýbyggingu dvalarheimilis aldraðra og auk þess aðal- og varamaður í ýmsum öðrum nefndum á vegum bæjarins. Formaður stjórnar Lionsklúbbs Eskifjarðar 1976-77 og aftur 1994-95, ritari 1996-97. Í stjórn Golfklúbbs Eskifjarðar 1980-84, 1990-92 og 1994-97, formaður 1983-84. Maki: 9. apríl 1966, Margrét Stefanía Sveinsdóttir, f. 1. mars 1946, húsfreyja. For.: Sveinn Vilhjálmsson, vitavörður á Dalatanga í Mjóafjarðarhr., S-Múl., síðar vélstjóri í Neskaupstað, f. 17. ágúst 1922, d. 10. ágúst 1979, og Ragnheiður Anna Stefánsdóttir, húsfreyja og sjúkraliði í Neskaupstað, síðar í Reykjavík, f. 6. okt. 1926. Fóstursonur þeirra: Kristján Árni Atlason, f. 9. okt. 1977, nemi. |
Mynd








