Álfheiður Hönn Ástvaldsdóttir f. 21. sept. 1970 á Sauðárkróki.
Faðir: Ástvaldur Ingi Guðmundsson, útvarpsvirki, tækjavörður hjá Ráðhúsi Reykjavíkur, f. 8. sept. 1941. For.: Guðmundur Ársæll Guðmundsson, skipstjóri í Hafnarfirði, f. 28. sept. 1921, og Álfheiður Ástvaldsdóttir, verkakona á Sauðárkróki, f. 30. maí 1918.
Móðir: Þórdís Einarsdóttir, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 24. júní 1944. For.: Einar Jónsson, bakari á Akureyri, f. 14. sept. 1909, d. 12. des. 1994, og k.h. Hólmfríður Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 12. apríl 1920.
Nám: Stúdent frá M.A. 1990. Cand. odont. frá H.Í. 17. júní 1997. Framhaldsnám í tannsjúkdómafræði við Karolinska Institutet í Stokkhólmi 2002-03, Master of Medical við sömu stofnun frá 2003.
Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Höllu Sigurjóns í Reykjavík frá júní 1997 til 2002. Aðjúnkt við Karolinska Institutet í Stokkhólmi 2003-05.
Félags- og trúnaðarstörf: Gjaldkeri í Svensk Förening för Cariologi frá 2005.
Maki: 2. ágúst 1997, Halldór Björn Halldórsson, f. 12. júní 1971, stúdent frá M.A. 1990, B.A. í frönsku frá H.Í. 1994, próf í grafískri hönnun frá M.H.Í. 1999, art director í Stokkhólmi. For.: Halldór Halldórsson, sérfræðingur í öldrunarlækningum og yfirlæknir á Akureyri, f. 23. júlí 1934, og k.h. Birna Björnsdóttir, vefnaðarkennari, f. 14. mars 1935, d. 9. maí 1995.
Synir þeirra: 1) Dagur, f. sept. 2000. 2) Egill Birnir, f. 14. mars 2005.
|