Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Guðný Esther Gunnarsdóttir

Guðný Esther Gunnarsdóttir f. 21. júní 1959 í Reykjavík.


Faðir: Gunnar Jón Engilbertsson, rafvélavirki, matreiðslumaður í Reykjavík, f. 23. mars 1934, d. 14. apríl 1976. For.: Engilbert Dagbjartur Guðmundsson, tannlæknir á Akureyri og síðar í Reykjavík, f. 9. ágúst 1909, d. 8. nóv. 1986, og k.h. Esther Ebba Bertelskjöld Jónsdóttir, kjóla- og kápumeistari, f. 3. júlí 1910, d. 25. ágúst 1991.


Móðir: Dóra María Aradóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 9. okt. 1938. For.: Ari Ásmundur Þorleifsson, bóndi á Gerðisstekk í Norðfjarðarhr., S-Múl., og á Klausturhólum í Grímsneshr., Árn., síðar búsettur á Selfossi, f. 3. nóv. 1913, og k.h. Guðný Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 19. mars 1915.


Nám: Stúdent frá M.L. 1979. Cand. odont. frá H.Í. 28. febr. 1987. Tannlækningaleyfi 21. apríl 1987.


Störf: Skólatannlæknir í Reykjavík frá 1987. Aðstoðartannlæknir hjá Hrafni Johnsen í Reykjavík frá 1989.


Félags- og trúnaðarstörf: Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1989-91. Í stjórn Félags skólatannlækna í Reykjavík 1991-92.


Maki: 25. ágúst 1984, Ómar Helgi Björnsson, f. 17. sept. 1959, stúdent frá M.L. 1979, cand. oecon. frá H.Í. 1985, viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi. For.: Björn Guðmar Maronsson, múrarameistari og verslunarmaður í Sandgerði, f. 2. júlí 1939, og k.h. Lydía Guðrún Egilsdóttir, verslunarmaður, f. 22. okt. 1941.


Dætur þeirra: 1) Lydía Ósk, f. 25. mars 1983. 2) María Ösp, f. 2. febr. 1988. 3) Þórunn Arna, f. 19. maí 1993.


Skyldleiki/tengdir: Engilbert D. Guðmundsson (föðurfaðir).


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar