Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Guðrún Gunnarsdóttir

Guðrún Gunnarsdóttir f. 8. sept. 1962 í Reykjavík.


Faðir: Gunnar Sigurðsson, löggiltur endurskoðandi í Reykjavík, f. 25. jan. 1939. For.: Sigurður Zóphanías Gíslason, prestur á Þingeyri við Dýrafjörð, V-Ís., f. 15. júlí 1900, d. 1. jan. 1943 (af slysförum), og k.h. Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja, síðar í Reykjavík, f. 5. jan. 1904, d. 9. sept. 1963.


Móðir: Guðný Leósdóttir, fulltrúi í Reykjavík, f. 4. mars 1941. For.: Leó Sveinsson, brunavörður í Reykjavík, f. 31. des. 1910, d. 4. maí 1986, og k.h. Margrét Lúðvíksdóttir, húsfreyja, f. 12. febr. 1911, d. 6. apríl 1997.


Nám: Stúdent frá F.B. 1982. Íþróttakennarapróf frá Í.K.Í. 1982. Cand. odont. frá H.Í. 1989. Tannlækningaleyfi 7. maí 1991.


Störf: Íþróttakennari við Vesturbæjarskóla í Reykjavík 1982-83 og við Hagaskóla jan.-maí 1983. Aðstoðartannlæknir á Akureyri júní-ágúst 1988 og hjá Herði Sævaldssyni í Reykjavík frá júní 1989 til ágúst 1990. Tannlæknir í Búðardal frá sept. 1990 til júlí 1993 og í Reykjavík frá jan. 1993.


Sambýlismaður: 1987, Sigurður Gunnar Sveinsson, f. 29. sept. 1963, stúdent frá Flensborg 1983, próf í kerfisfræði frá T.V.Í. 1990, kerfisfræðingur. For.: Sveinn Ásgeir Sigurðsson, vélstjóri hjá útgerðarfélaginu Ögurvík hf., búsettur í Hafnarfirði, f. 10. júlí 1936, og k.h. Nanna Sigurbjörg Sigurðardóttir, leikskólastarfsmaður, f. 8. jan. 1936.


Börn þeirra: 1) Gunnar Atli, f. 25. ágúst 1989. 2) Signý, f. 19. mars 1992.


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar