Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Guðrún Haraldsdóttir

Guðrún Haraldsdóttir f. 29. júní 1959 í Reykjavík.


Faðir: Haraldur Guðjónsson, dr. med., læknir í Reykjavík og síðar yfirlæknir í Stokkhólmi, f. 29. sept. 1929, d. 20. ágúst 1973. For.: Guðjón Helgi Sæmundsson, húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 11. ágúst 1883, d. 26. okt. 1960, og k.h. Arnheiður Jónsdóttir, handavinnukennari og námsstjóri, f. 10. jan. 1894, d. 15. des. 1987.


Móðir: Ingveldur Dagbjartsdóttir, húsfreyja í Stokkhólmi og síðar deildarstjóri í Reykjavík, f. 5. okt. 1933. (Ingveldur var seinni k. Haralds.) For.: Dagbjartur Lýðsson, kaupmaður og framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 9. febr. 1906, d. 9. júlí 1957, og k.h. Jórunn Ingimundardóttir, húsfreyja, f. 29. jan. 1911.


Nám: Stúdent frá M.H. 1977. Cand. odont. frá H.Í. 1983. Tannlækningaleyfi 19. des. 1983.


Störf: Stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands 1983-87. Leigði aðstöðu hjá Magnúsi Torfasyni tannlækni í Reykjavík frá júní 1983 til mars 1987. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá apríl 1987.


Félags- og trúnaðarstörf: Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1984-86 og í fræðslunefnd 1986-87. Ritari í stjórn TFÍ 1993-95. Í ársþings- og endurmenntunarnefnd frá 1995. Í samninganefnd við tannsmiði og aðstoðarfólk tannlækna frá 1995.


Sambýlismaður: 1979, Björn Árnason, f. 25. júní 1956, stúdent frá M.R. 1977, B.A. í landafræði frá H.Í. 1984, kennari við Breiðholtsskóla. For.: Árni Jónsson, útibússtjóri hjá Landsbanka Íslands í Reykjavík, f. 24. maí 1929, og k.h. Gisela Brigitte Helene Jónsson, f. Schulze (frá Stettin), húsfreyja, f. 24. mars 1931.


Synir þeirra: 1) Haraldur, f. 23. des. 1981. 2) Brynjar, f. 10. nóv. 1987. 3) Arnar, f. 10. nóv. 1987.




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar