Guðrún Ólafsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir f. 21. júlí 1944 í Reykjavík. Faðir: Ólafur Ólafsson, verslunarmaður í Reykjavík, f. 23. ágúst 1916. For.: Ólafur Sigurðsson, skipstjóri frá Flatey á Breiðafirði, f. 5. maí 1878, d. í okt. 1917 (drukknaði), og k.h. Guðrún Baldvinsdóttir (frá Siglunesi), húsfreyja, síðar á Siglufirði, f. 2. ágúst 1878, d. 8. febr. 1942. Móðir: Sigrún Eyþórsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 24. ágúst 1919. For.: Oddur Eyþór Guðjónsson, bókbindari í Reykjavík og starfsmaður hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands, f. 12. jan. 1886, d. 2. sept. 1975, og k.h. Ástríður Björnsdóttir, húsfreyja, f. 13. sept. 1891, d. 18. okt. 1969. Nám: Stúdent frá M.R. 1964. Cand. odont. frá H.Í. frá 1971. Tannlækningaleyfi 6. apríl 1972. Framhaldsnám í tannréttingum við Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn frá sept. 1976 til sept. 1978. Sérfræðingsleyfi í tannréttingum 21. nóv. 1988. Störf: Skólatannlæknir í Reykjavík frá febr. 1971 til okt. 1975. Aðstoðartannlæknir hjá Ólafi Björgúlfssyni frá jan. 1972 til ágúst 1976. Aðstoðartannlæknir hjá Ole Dahl Petersen í Trørød í Danmörku frá sept. 1976 til júlí 1977. Tannlæknir hjá Københavns kommune frá sept. 1977 til nóv. 1978. Aðstoðartannlæknir hjá Ólafi Björgúlfssyni í Reykjavík frá nóv. 1978 til des. 1979. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá des. 1979. Maki: 26. ágúst 1967, Jón Guðmundsson, f. 12. ágúst 1943, stúdent frá M.R. 1964, cand. oecon. frá H.Í. 1971, viðskiptafræðingur, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu. For.: Guðmundur Jónsson, búfræðingur, verkamaður í Reykjavík, f. 9. jan. 1913, d. 14. júní 1946, og k.h. Hulda Ragna Einarsdóttir, skrifstofumaður og símavörður hjá D.A.S. í Reykjavík, f. 31. ágúst 1920. Dætur þeirra: 1) Sigrún, f. 1. apríl 1969, tannlæknir í Reykjavík. Sambýlismaður: Einar Jóhannsson, f. 4. maí 1969, rafmagnsverkfræðingur. 2) Solveig Hulda, f. 8. júní 1971, stud. odont. í Reykjavík. Maki: Pétur Sveinsson Snæland, f. 30. maí 1971, vélaverkfræðingur. 3) Ástríður, f. 14. febr. 1979, menntaskólanemi. Skyldleiki/tengdir: Sigrún Jónsdóttir (dóttir). |
Mynd








