Guðrún Rut Guðmundsdóttir
Guðrún Rut Guðmundsdóttir f. 24. mars 1970 á Akureyri. Faðir: Guðmundur Ómar Guðmundsson, húsasmíðameistari á Akureyri, f. 29. júlí 1946. For.: Guðmundur Theodór Guðmundsson, fiskmatsmaður á Höfn í Hornafirði, f. 1. maí 1920, og k.h. (skildu 1960) Hanna Stefánsdóttir, húsfreyja og kaupmaður á Akureyri, f. 2. ágúst 1920. Stjúpfaðir (Guðmundar, seinni m. Hönnu): Jón Anton Kristjánsson, rafvirkjameistari og kaupmaður á Akureyri, f. 3. júní 1911, d. 25. febr. 1989. Móðir: Anna Ingólfsdóttir, leiðbeinandi á Akureyri, f. 30. sept. 1945. For.: Ingólfur Gunnarsson, bóndi á Hrísum í Saurbæjarhr. og í Miðhúsum í Hrafnagilshr., Eyjaf., síðar bankagjaldkeri og afgreiðslumaður á Akureyri, f. 22. febr. 1915, og k.h. Guðrún Anna Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 25. mars 1907, d. 28. nóv. 1988. Nám: Stúdent frá M.A. 1990. Cand. odont. frá H.Í. 17. júní 1996. Tannlækningaleyfi 9. sept. 1996. Starf: Aðstoðartannlæknir hjá Herði Þórleifssyni á Akureyri frá júní 1996. Félags- og trúnaðarstörf: Starfsmaður í barna- og unglingadeild K.F.U.K. á Akureyri 1986-90. Í stjórn Kristilegs stúdentafélags 1992-93. Í ritnefnd Harðjaxls 1994. Í stjórn (meðstjórnandi) Tannlæknafélags Norðurlands frá nóv. 1996. Ritstörf: Ofbeldi gegn börnum kemur öllum við - líka okkur, Harðjaxl, 1:1994; Lýsing tanna (ásamt öðrum), sst., 1:1996. |
Mynd








