Árni Páll Halldórsson
Árni Páll Halldórsson f. 23. nóv. 1959 í Keflavík. Faðir: Halldór Guðmundur Pálsson, skipasmiður og framkvæmdastjóri Iðnsveinafélags Suðurnesja í Keflavík, f. 9. maí 1929. For.: Páll Guðmundur Pétursson, verkamaður á Siglufirði, f. 27. júní 1876, d. 31. jan. 1950, og k.h. Sigríður Kristín Gunnarsdóttir, húsfreyja, f. 21. sept. 1892, d. 7. maí 1935 Móðir: Helga Árnadóttir, húsfreyja í Keflavík, f. 5. maí 1932. For.: Árni Jóhannesson, bóndi og hreppstjóri á Þverá í Öngulsstaðahr., Eyjaf., f. 2. sept. 1892, d. 30. des. 1970, og k.h. Þóra Jónsdóttir, húsfreyja, f. 10. júní 1898, d. 18. maí 1989. Nám: Stúdent frá F.Sn. 1979. Cand. odont. frá H.Í. 1989. Tannlækningaleyfi 22. mars 1989. Starf: Tannlæknir á Akureyri í samstarfi við Ingva Jón Einarsson frá febr. 1989. Félags- og trúnaðarstörf: Ritari í stjórn Tannlæknafélags Norðurlands 1990-92 og meðstjórnandi 1992-93. Í stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs frá 1993. Sambýliskona: Júní 1995, Helga María Sigurðardóttir, f. 29. jan. 1961, húsfreyja. For.: Sigurður Baldvinsson, skrifstofumaður á Akureyri, f. 26. sept. 1915, d. 23. júlí 1995, og k.h. Ragnheiður Pálsdóttir, húsfreyja, f. 7. nóv. 1922. Dóttir þeirra: Halldóra, f. 19. ágúst 1995. Skyldleiki/tengdir: Björn Rögnvaldsson (maki þrem. við Á.P.H.), María Elíasdóttir (Á.P.H. tvím. við móður M.E.). |
Mynd








