Gunnar Erling Vagnsson
Gunnar Erling Vagnsson f. 27. sept. 1960 á Blönduósi. Faðir: Vagn Gunnarsson, slökkviliðsmaður í Reykjavík og ökukennari í Hafnarfirði, f. 31. jan. 1935. For.: Gunnar Gíslason, bóndi í Ábæ í Austurdal og á Víðivöllum í Blönduhlíð, Akrahr., á Bússtöðum í Austurdal, Lýtingsstaðahr., Skag., og á Sólborgarhóli í Glæsibæjarhr., Eyjaf., síðar á Sauðárkróki, f. 24. okt. 1894, d. 23. jan. 1974, og k.h. Sigríður Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 12. mars 1894, d. 22. júlí 1967. Móðir: Sigurbjörg Bára Sigurgeirsdóttir, gjaldkeri hjá sýslumanninum í Hafnarfirði, f. 19. okt. 1938. For.: Sigurgeir Magnússon, húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 27. sept. 1913, og k.h. Kristín Jóhanna Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 30. mars 1918, d. 30. des. 1987. Nám: Stúdent frá Flensborg 1980. Cand. odont. frá H.Í 1987. Tannlækningaleyfi 21. júlí 1987. Störf: Tannlæknir á Heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum frá jan. 1987 til júní 1990. Tannlæknir í Kópavogi frá júlí 1990 til júlí 1995 og í Garðabæ frá júlí 1995. Félags- og trúnaðarstörf: Félagi í Rótarýklúbbi Héraðsbúa 1987-90, gjaldkeri 1989-90. Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1990-91. Maki: 8. ágúst 1992, Sigrún Hauksdóttir, f. 2. maí 1964, stúdent frá M.E. 1990, próf frá T.Í. 1994, meinatæknir. For.: Haukur Jónsson, prentari í Hafnarfirði, f. 3. júlí 1931, og k.h. Guðný Lilja Jóhannsdóttir, húsfreyja, f. 1. ágúst 1935. Dætur þeirra: 1) Sonja, f. 15. apríl 1986. 2) Karen, f. 24. ágúst 1990. 3) Ellen, f. 8. ágúst 1995. Skyldleiki/tengdir: Ingimundur Kr. Guðjónsson (maki tvím. við móður G.E.V. |
Mynd








