Munn- og kjálkaskurðlækningar

Gunnar Ingi Jóhannsson

Bæjarlind 12, Kópavogur
Sími: 561-3800
Hjólastólaaðgengi: Já
Gunnar Ingi Jóhannsson tannlæknir, cand.odont.
 
Lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2002, stundaði tannlæknanám við Háskóla Íslands frá 2003 til 2009. Hann starfaði sem almennur tannlæknir á árunum 2009 til 2013 og hélt þá utan til Álaborgar í Danmörku þar sem hann var við sérfræðinám í munn- og kjálkaskurðlækningum við Háskólasjúkrahúsið í Álaborg frá 2013 – 2018, með eins árs viðkomu við Háskólasjúkrahúsið í Árósum.
 
Gunnar fékk sérfræðileyfi í munn- og kjálkaskurðlækningum í Danmörku í september árið 2018 og á Íslandi sama ár. Hann starfar nú við sérgrein sína í Bæjarlind 12 í Kópavogi. Gunnar er einnig aðjúnkt við Tannlæknadeild Háskóla Íslands auk þess að vera í hlutastarfi sérfræðings í munn- og kjálkaskurðlækningum við Landspítala Háskólasjúkrahús frá júlí 2018.
 
Gunnar hefur bæði haldið fyrirlestra og ritað fræðigreinar hérlendis sem og erlendis. Gunnar er meðlimur að Tannlæknafélagi Íslands og EAO.
 
Hafa samband við stofu: