Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Nefndir

Starfsreglur fyrir fastar nefndir TFÍ

Á vegum Tannlæknafélags Íslands starfa fastar nefndir, sem ýmist eru kosnar á aðalfundi eða að stjórn TFÍ tilnefnir nefndarmenn. Stjórn TFÍ hefur samið starfsreglur fyrir þessar nefndir til að gera starf þeirra markvissara.

Eftirfarandi starfsreglur hefur stjórn TFÍ samþykkt.

Fastar nefndir og ráð eru eftirfarandi og skal sameiginlegt með þeim:

  • að nefndarmenn komi saman minnst einu sinni á ári.
  • að færa fundi nefndanna til bókar
  • að skrifstofa TFÍ veiti nefndunum skrifstofuþjónustu og að öll gögn nefnda séu varðveitt þar
  • að nefndarmenn eða formenn nefnda komi minnst einu sinni á ári á fund stjórnar TFÍ (apríl / maí) til að greina frá starfi nefndanna
  • að formenn nefnda og fulltrúar félagsins í ráðum skili skýrslu yfir starfsemina til skrifstofu TFÍ fimm vikum fyrir aðalfund TFÍ

Skipan einstakra starfsnefnda TFÍ 2010 - 2011.
- samþykkt á aðalfundi 11. nóvember 2010.
Nafn þess sem fer fyrir nefndinni er jafnan fremst




1. Árshátíðar- og skemmtinefnd
Áslaug Óskarsdóttir formaður, Elín Sigurgeirsdóttir, Guðrún Jónsdóttir,  Hrönn Róbertsdóttir, Kristín Gígja Einarsdóttir, Kristín Heimisdóttir, Petra Sigurðardóttir, Solveig Hulda Jónsdóttir.

Nefndin sér um og skipuleggur árshátíð félagsins, jólaball barna og aðrar skemmtanir sem ákveðnar eru á vegum félagsins og fram fara utan félagsheimilis TFÍ. Fjárhagsáætlun skemmtanahalds skal unnin í náinni samvinnu við framkvæmdastjóra félagsins og skal hún miðast við að hver skemmtun sé hallalaus.


2. Ársþings- og endurmenntunarnefnd
Elín Sigurgeirsdóttir, Hrönn Róbertsdóttir, Gunnlaugur Þ. Guðmundsson, Berglind Jóhannsdóttir, Elva Björk Sigurðardóttir, Magnús R Friðjónsson og fulltrúi stjórnar.

Nefndin skipuleggur ársþing í samvinnu við framkvæmdastjóra félagsins. Fastsetja skal tíma ársþings með a.m.k. eins og hálfs árs fyrirvara. Strax að loknu ársþingi skal nefndin koma saman, skipta með sér verkum og ákveða þingstað og faglega dagskrá næsta ársþings. Leita skal tilboða vegna fundasala og veitinga og gera fjárhagsáætlun fyrir þingið.
Nefndin skal ásamt framkvæmdastjóra gera í upphafi væntanlegum fyrirlesurum skilmerkilega grein fyrir hugmyndum ársþingsnefndarinnar um efnistöku fyrirlesturs, tímalengd og væntanlegan fjölda þátttakenda. Samið skal fyrirfram um þóknun til fyrirlesara. Bráðabirgðadagskrá ásamt fjárhagsáætlun skal lögð fyrir stjórn TFÍ til samþykktar.
Fyrir ársþing skulu nefndarmenn vera búnir að skipta með sér verkum og vera tiltækir vegna þeirra fjölmörgu starfa sem tilheyra slíku þinghaldi. Nefndarmenn greiða ekki þátttökugjald en borga matarkostnað.
Námskeiðsmat nýliðins ársþings skal liggja fyrir á fyrsta fundi nýrrar ársþingsnefndar. Skal hafa það til hliðsjónar fyrir undirbúning næsta þings og niðurstöður matsins skulu kynntar viðkomandi fyrirlesurum.
Auk ársþings hefur nefndin frumkvæði að fyrirlestrahaldi fyrir félagsmenn annan tíma ársins eins og nefndarmenn telja best verða við komið. Endurmenntunarmál félagsmanna heyra undir ársþingsnefnd. Nefndarmenn eru sex auk fulltrúa stjórnar. Þeir eru kosnir til þriggja ára.
 
3. Félagsheimilisnefnd
Hlynur Þ Auðunsson, Ottó Þórsson, Ásgeir G Ásgeirsson, Gunnar Ingi Gunnarsson, fulltrúi stjórnar (framkvæmdastjóri)

4. Fulltrúi TFÍ í sérfræðinefnd
Ásgeir Sigurðsson, Sigurjón Arnlaugsson, varamaður

Nefndin er skipuð skv. 5.gr.laga nr. 38/1985 um tannlækningar. Hún fjallar um reglur um nám sérfræðinga og umsóknir um sérfræðileyfi á sviði tannlækninga. Nefndin er þannig skipuð að deildarforseti Tannlæknadeildar Háskóla Íslands er formaður hennar, annar er yfirtannlæknir heilbrigðisráðuneytisins og hinn þriðji skal tilnefndur af Tannlæknafélagi Íslands til þriggja ára í senn. TFÍ skal einnig tilnefna einn varamann. Nefndin skal einnig kveðja til tvo sérfróða menn til þátttöku í meðferð einstakra mála er varða viðkomandi sérgrein og fá þeir þá atkvæðisrétt í nefndinni.




5. Gerðardómur
Þórir Schiöth, Þórarinn Jónsson, Heimir Sindrason, Sigurjón Benediktsson og Ingibjörg S Benediktsdóttir.

Í gerðardómi sitja 5 fyrrverandi formenn TFÍ. Hlutverk dómsins er að fjalla um brot félagsmanna á lögum og siðareglum félagsins eftir árangurslausar áminningar stjórnar félagsins. Gerðardómur ákveður frekari refsingu og getur vísað félagsmanni úr TFÍ.




6. Hag- og rekstrarnefnd (áður Gjaldskrárnefnd)
Börkur Thoroddsen, Halldór G Halldórsson, Kristján Víkingsson, Þorsteinn Sch.Thorsteinsson og formaður félagsins.
Hag- og rekstrarnefnd skal hafa frumkvæði að tillögum að nýjum liðum og breytingum í gjaldskrá TFÍ og TR vegna tryggðra sjúklinga. Nefndin skal vera tengiliður milli félagsmanna og samstarfsnefndar TR og TFÍ. Henni ber að koma á framfæri við samstarfsnefndina óskum og tillögum frá félagsmönnum. Þá ber nefndarmönnum að veita félagsmönnum upplýsingar um breytingar á launa- og kostnaðarhluta rekstrar. Það er í verkahring formanns nefndarinnar að taka saman ákveðnar hagtölur árlega, sem skipta rekstur félagsmanna máli, til upplýsingar fyrir félagsmenn. Nefndin sér um að útreikningur á gjaldskrá TR og TFÍ fari fram samkvæmt samningi. Nefndin kemur saman í hvert sinn sem breyting verður á gjaldskrá félagsins og TR, fer yfir útreikninga og samþykkir hverju sinni. Nefndarmenn eru fjórir auk formanns félagsins. Þeir eru kosnir til eins árs í senn.




7. Lyfjanefnd
Rolf Hansson, Elín S. Wang og Guðmundur Á. Björnsson.

Nefndin skal fylgjast með lyfjamálum sem lúta að tannlækningum. Henni ber að kynna félagsmönnum upptöku nýrra lyfja og lyfjalöggjöf er lýtur að tannlækningum. Nefndarmenn eru þrír, kosnir til þriggja ára. Árlega gengur einn maður úr nefndinni.


8. Minjasafnsnefnd
Birgir J. Jóhannsson, Guðmundur Rúnar Ólafsson og Ólafur Björgúlfsson
Nefndin hefur það hlutverk að halda til haga merkum munum og tækjum sem tengjast tannlækningum. Nefndin skal sjá um að skrásetja safnmunina og hafa safnið í góðu lagi og aðgengilegt til skoðunar fyrir félagsmenn og aðra. Formaður nefndar skal skila skýrslu fyrir aðalfund.


9. Orða- og fræðslunefnd
Björgvin Ó Jónsson, Einar Ragnarsson og Karl Örn Karlsson, Helgi Hansson.
Hlutverk orðanefndar er söfnun og smíði orða er lúta að tannlækningum. Nefndin skal m.a. gera tillögur til samstarfsnefndar TR og TFÍ um orðalag í gjaldskránni og íslensk orð í stað erlendra. Nefndin gefi út orðalista, sem birtist í FRÉTTABRÉFI TFÍ og TANNLÆKNABLAÐINU. Fræðslunefnd skal sjá um útgáfu á fræðsluefni fyrir tannlækna sem nýtist við fræðslu sjúklinga, og öðru handhægu efni sem hægt væri að lána út til leiðbeinenda eða á sýningar. Nefndarmenn eru fjóri kosnir til fjögurra ára. Árlega gengur einn maður úr nefndinni.




10. Ritnefnd Tannlæknablaðs og heimasíðu
Sigurður Rúnar Sæmundsson ritstjóri, Jónas Geirsson, Hólmfríður Guðmundsdóttir og Sigurjón Arnlaugsson.

Hlutverk nefndarinnar er að gefa út Tannlæknablaðið einu sinni á ári á sama tíma (september / október) ár hvert og annast yfirritstjórn heimasíðu félagsins. Nefndin skiptir með sér verkum varðandi fjármál og faglegt efni blaðsins og skal vinna í nánu samstarfi við skrifstofu TFÍ, sem annast m.a. auglýsingamál blaðsins. Leita skal tilboða í blaðið og leggja fyrir stjórn TFÍ til samþykktar.




11. Ritnefnd Tannlæknatals
Sigurjón Sigurðsson, Gunnar Þormar, Gunnar Rósarsson og Jónas B. Birgisson.
Hlutverk nefndarinnar er að gefa út Tannlæknatal í samvinnu við stjórn félagsins. Stjórninni skal gerð grein fyrir kostnaðaráætlun við útgáfustarfsemina og samþykkja.




12. Samninganefnd við tannsmiði og FTAT
Gísli Vilhjálmsson, Guðrún Haraldsdóttir og Kristján Víkingsson
Nefndin hefur það hlutverk að semja um kaup og kjör f.h. TFÍ við tannsmiði og aðstoðarfólk tannlækna þegar samningar eru lausir. Samvinna skal vera milli stjórnar félagsins og nefndarinnar. Félagsmenn geta leitað til nefndarmanna varðandi túlkun á þeim samningum sem í gildi eru.


13. Samninganefnd TFÍ og TR
Formaður félagsins (sjálfkjörinn), Stefán Hallur Jónsson, Ásgeir Sigurðsson og Þorsteinn Sch Thorsteinsson
Nefndin annast samningamál við Tryggingastofnun ríkisins í umboði stjórnar TFÍ. Nefndarmenn skulu upplýsa stjórn TFÍ reglulega um gang samningamála og bera undir hana allar ákvarðanir og samþykktir nefndarinnar. Ekkert mál má afgreiða nema með samþykki stjórnar TFÍ. Fjórir nefndarmenn skulu kosnir á aðalfundi en að auki sitji formaður TFí í nefndinni.




14. Samstarfsnefnd TFÍ og TR
Jón Ásgeir Eyjólfsson, varamaður Ingunn Mai Friðleifsdóttir. Formaður félagsins, varamaður Stefán Hallur Jónsson.
Samstarfsnefnd starfar samkvæmt ákvæðum samnings TFÍ og SHTR

Í 6. grein samnings TFÍ og TR frá júní2007 segir að samstarfsnefnd skuli starfa á vegum samningsaðila og setur nefndin sér starfsreglur. 'i nefndina tilnefnir hvor aðili tvp fulltrúa og jafn marga til vara. TR skal leggja til ritara. Nefndin ákveður sér fundarstað og fundartíma.
Samstarfsnefnd skal vinna að og taka fyrir mál er varða samskipti TR. Miðstöðvar tannverndar, tryggðra og tannlækna samkvæmt samningi þessum og önnur atriði er varða samskipti þessara aðila vegna tryggðra einstaklinga samkvæmt nánara samkomulagi. Nefndin skal vera leiðbeinandi um framkvæmd og túlkun þessa samnings og leitast við að koma á sáttum í ágreiningsmálum er upp unna að koma í samskiptum aðila. Komi upp ágreiningur hefur hver aðili um sig málskotsrétt til samstarfsnefndar.
Nefndarmenn skulu gæta fyllsta trúnaðar varðandi þær upplýsingar sem nefndin sýslar með. Samstarfsnefnd skal fara að ákvæðum stjórnsýslulaga við málsmeðferð sína.



15. VEIT - Virk Endurmenntun Íslenskra Tannlækna
Í stjórn VEIT eru:
Fulltrúi stjórnar TFÍ: . Fulltrúi tannlæknadeildar HÍ: Björn Ragnarsson
Fulltrúi kosinn á aðalfundi TFÍ: Þorsteinn Sch. Thorsteinsson

Hlutverk nefndarinnar er að meta þau námskeið, fyrirlestra, þing og greinalestur sem gefa einingar í VEIT. Nefndin setur sér nánari reglur um einingamat og kynnir í fréttabréfi TFÍ eða á aðalfundi. Í samráði við framkvæmdastjóra heldur nefndin skrá yfir tannlækna sem stunda VEIT. Árlega eru gefin út viðurkenningarskjöl til handa þeim tannlæknum sem uppfylla skilyrði VEIT. Einnig sér nefndin um það í samráði við framkvæmdastjóra að merkja þá tannlækna með auðkenni VEIT í Símaskrá. Tillaga að breyttum starfsreglum og lögum VEIT eru lögð fram á aðalfundum TFÍ.
16. Vísindasjóður
Formaður félagsins, Þórarinn Jónsson og Þórarinn J. Sigurðsson.
1. Nafn sjóðsins er Vísindasjóður Tannlæknafélags Íslands og er hann eign TFÍ.
2. Tilgangur sjóðsins er að styrkja rannsóknir og stuðla að vísindastörfum á sviði tannlæknisfræða á Íslandi. Í því augnamiði skal TFÍ leggja sjóðnum til fé, er nemur allt að árgjöldum átta félagsmanna til félagsins það árið, sem veitt er úr sjóðnum.
3. Stjórn sjóðsins skipa formaður TFÍ og tveir menn aðrir, sem kosnir skulu til árs í senn á aðalfundi TFÍ. Stjórnarmenn skipta
sjálfir með sér verkum. Stjórnin skal halda gjörðarbók um starfsemi sjóðsins. Stjórn sjóðsins skal gera grein fyrir verkum sínum
á hverjum aðalfundi TFÍ. Hafi stjórnarmaður hagsmuna að gæta við úthlutun úr sjóðnum skal hann víkja sæti og stjórn TFÍ skipa mann í hans stað. Skrifstofa TFÍ lætur sjóðnum í té skrifstofuþjónustu.
4. Auglýsing um styrki sjóðsins skal birtast með fullnægjandi hætti í febrúarmánuði ár hvert og skal umsóknarfrestur vera til 1. júní þess árs.
5. Styrkbeiðnir eru gjaldgengar frá öllum tannlæknum og öðrum vísindamönnum til ákveðinna verkefna, greiðslu kostnaðar við rannsóknir og útgáfu á ritverkum á sviði tannlæknisfræða á Íslandi. Í umsókn skal greina ítarlega frá því viðfangsefni, sem óskast styrkt, áætlunum um kostnað og tímalengd rannsóknar og fjárframlögum frá öðrum til verksins. Að jafnaði veitir sjóðurinn ekki fé til tækjakaupa.
6. Mat umsókna skal fyrst og fremst ráðast af vísindalegu gildi verkefnisins. Til þessa getur sjórn sjóðsins leitað aðstoðar sérfróðra manna. Einnig skal taka tillit til fjárveitinga annarra til verksins. Að öðru jöfnu skal sá hafa forgang, er ekki hefur áður fengið úthlutun úr sjóðnum. Berist sjóðnum engin verðug umsókn, fellur úthlutun niður það árið. Að öðru leyti setur stjórn sjóðsins sér vinnureglur við úthlutun.
7. Úthlutun úr sjóðnum skal kynna á aðalfundi TFÍ. Heimilt er stjórn sjóðsins að haga greiðslu styrks eftir því sem verki miðar.
8. Styrkþegi skal afla sér allra nauðsynlegra heimilda til verksins, svo sem frá Tölvunefnd og viðkomandi siðanefndum. Við vinnu sína ber honum að fara að lögum og almennum reglum í hvívetna.
9. Styrkþegi skal senda stjórn sjóðsins skýrslu um verk sitt að því loknu og framvinduskýrslu við mögulega endurnýjun umsóknar.
10. Styrkþegi skal láta geta styrks sjóðsins í öllum þeim ritsmíðum, er greina frá niðurstöðum rannsókna styrktum af sjóðnum.
11. TFÍ áskilur sér rétt til þess að nota niðurstöður rannsókna styrkþega í fjölmiðlum, félaginu til heilla og til eflingar tengsla þess við almenning.


18. Fulltrúi í sáttanefnd TFÍ, Landlæknis og Neytendasamtaka
Jón Viðar Arnórsson formaður, Björn Þorvaldsson, Teitur Jónsson og til vara Björgvin Ó Jónsson.

Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar