Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Tannlæknablaðið

Tannlæknablaðið, blað Tannlæknafélags Íslands, er gefið út einu sinni á ári, í tengslum við ársþing tannlækna og vörusýningu þjónustuaðila, sem haldin eru í lok október eða byrjun nóvember. Blaðið er sent félagsmönnum, nemum í greinini, heilbrigðisstofnunum, háskólum og öðrum fagfélögum hér á landi. Upplag er 500 eintök.

Leiðbeiningar fyrir höfunda fræðigreina

Ritstjórn Tannlæknablaðsins, sem kosin er á aðalfundi Tannlæknafélags Íslands, er skipuð tannlæknum. Hlutverk blaðsins er að vera vettvangur fyrir tannlækna til að nálgast og koma á framfæri faglegu efni sem tengist tannlækningum eða stéttinni sem slíkri. Í áranna rás hefur birst fjöldi vísindagreina og annað efni sem tengist tannlæknisfræðunum með einhverjum hætti. Heimildagildi blaðsins er löngu staðfest. Blaðið hefur tekið nokkrum breytingum í gegnum tíðina og hefur útgáfa þess alltaf verið ómissandi liður og tilhlökkunarefni í hugum félagsmanna. Tannlæknablaðið er viðurkennt fagtímarit sem talsvert mikið er vitnað til í faglegri umræðu. Ritstjórn blaðsins leggur sem fyrr áherslu á að texti auglýsinga sé á íslensku.

Sækja Tannlæknablaðið 2009

Sækja Tannlæknablaðið 2008

Sækja Tannlæknablaðið 2007

Sækja Tannlæknablaðið 2006

Sækja Tannlæknablaðið 2005

Áskrift af Tannlæknablaðinu
Áskrift að Tannlæknablaðinu kostar 2.500,-

TFí gefur einnig út Fréttabréf.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar