Neyðarvakt Tannlæknafélags Íslands á höfuðborgarsvæðinu  

 
 
Laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. júlí er neyðarvakt milli 10-12 hjá Tannsetrinu, Hlíðasmára 17, Kópavogi. Sími 554-7070 eða 849-0707.
 
Mánudaginn 29. júlí til föstudagsins 2. ágúst er bakvakt hjá Tannsetrinu i á stofutíma í sama símanúmeri. 
 
Laugardaginn 3.,  sunnudaginn 4. og mánudaginn 5. ágúst (frídag verslunnarmanna) er neyðarvakt milli 10-12 hjá Tannsetrinu, Hlíðasmára 17, Kópavogi. Sími 554-7070 eða 849-0707.
 
Þriðjudaginn 6. til föstudagsins 9. ágúst er bakvakt hjá Tannsetrinu i á stofutíma í sama símanúmeri
.
Athugið að á vegum Tannlæknafélags Íslands er ekki rekin neyðarvakt um kvöld og nætur og er sjúklingum bent á að snúa sér til slysadeildar sjúkrahúsanna þegar um alvarleg slys er að ræða.
 
Neyðarlína, sími 112 - EINN EINN TVEIR
 
Þegar slys eða óhapp ber að höndum, hringir þú í Neyðarlínuna í síma 112.  Skýrðu á glöggan hátt frá aðstæðum, segðu hvar þú ert og hvers konar hjálpar er óskað.  haltu stillingu þinni og hlustaðu eftir ráðleggingum viðmælanda, sem þegar í stað gerir viðeigandi ráðstafanir þér til hjálpar.
 
Til notenda gsm síma: Hafið hugfast að hægt er að hringja í Neyðarlínuna, jafnvel þótt ekkert símakort sé í símanum.
 
Beint innval á slysadeild Landspítala allan sólarhinginn er 543 1000