Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

23.8.2010

Skaðleg lýsingarefni tekin úr sölu á Netinu

Google, eBay og Amazon hafa samþykkt selja ekki lýsingarefni á Internetinu sem innihalda meira en 0,1% vetnisperoxíð.  Þetta gera þau eftir að upp komst, en Evrópusambandið bannar sölu á lýsingarefnum sem innihalda meira en 0,1% vetnisperoxíðs eins og áður sagði. Sjá hér

18.8.2010

Íslendingar fá birta fræðigrein í virtu tímariti.

Birt hefur verið ítarleg grein um tannátutíðni á Íslandi í tímaritinu Community Dentistry and Oral Epidemiology. Í greininni er m.a. MUNNÍS rannsókninni gerð ítarleg skil, sem sýndi fram á óásættanlega tannátutíðni á Íslandi.

 

Hægt er að nálgast greinina gegnum Landsaðgang Hvar.is

7.8.2010

Tengsl tannholdssjúkdóma og Alzheimer komin fram

Vísindamenn í New York hafa fundið hugsanleg tengsl milli tannholdssjúkdóma og Alzheimer.

Sjá nánar hér:

28.5.2010

Bursta tennurnar tvisvar á dag

Þeir sem ekki bursta tennurnar eru í 70% meiri hættu að fá hjartasjúkdóma en þeir sem bursta tennurnar tvisvar á dag. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar skoskra vísindamanna.

                        
  

Rannsóknin sem náði til 11 þúsund einstaklinga og stóð í átta ár, sýnir samband hjartasjúkdóma og tannhirðu.
Þeir sem ekki bursta tennurnar eru í meiri hættu en þeir sem hugsa vel um tennurnar.  Á rannsóknartímanum fengu 555 þátttakendur fyrir hjartað. Þar af létust 170 úr hjartaslagi.

Niðurstöðurnar sem birtar eru í breska læknatímaritinu The British Medical Journal staðfesta fyrri niðurstöður rannsókna um að samband sé milli sjúkdóma í munnholi og hjartasjúkdóma.  Þeir sem ekki sinntu hreinlæti í munni greindust einnig með eggjahvítu í blóði sem talið er að tengist bólgum en bólgur auka hættu á að blóðtappar myndast sem geta leitt til hjartaslags.

Þetta er í fyrsta sinn sem vísindamenn kanna hvort það skipti máli fyrir tíðni hjartasjúkdóma hve oft fólk burstar tennurnar. Tekið var tillit til annarra áhættuþátta fyrir hjartasjúkdóma, eins og þjóðfélagsstöðu, offitu, ofþyngd, reykinga og erfða og fjölskyldu sögu og niðurstaðan var skýr. Þeir sem burstuðu tennurnar tvisvar á dag voru í minni hættu en aðrir að fá hjartasjúkdóma

RÚV – Hádegisfréttir 28. Maí

9.3.2010

Bætt tannheilsa hjá leik- og grunnskólabörnum

Skýrsla starfshóps um tannheilsu og tannvernd.
sjá nánar

20.2.2010

Um 80% tannlækna með aðgengilega gjaldskrá og geri aðrir betur.

Neytendastofa kannaði á dögunum hvort tannlæknar hafi aðgengilega verðskrá á stofum sínum.  Í ljós kom að 78% tannlækna hafi gjaldskrár sínar aðgengilegar neytendum þjónustunnar.

 Sjá Neytendastofa.is

16.2.2010

Óeigingjarnt starf tannlækna

Þrjátíu börn fengu ókeypis tannlæknaþjónustu.

Frétt á visir.is

1.2.2010

Tannverndarvika hafin

Árleg tannverndarvika er hafin og er sérstök áhersla lögð á tannvernd barna.

Nánar á Lýðheilsustöð 

25.1.2010

Barnatannkrem þurfa að innihalda meira en 1000ppm flúors til að hafa áhrif

Cochrane Oral Health Group birtir rannsókn sem segir að barnatannkrem sem innihalda minna en 1000ppm flúors  geri sama gagn og flúorlaus tannkrem.  Tannkrem sem innihalda 1000ppm flúor eða meira  lækka hins vegar tíðni tannskemmda.

Cochrane Oral health Group



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar