Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

28.12.2011

Andlátstilkynning


busk
Eyjólfur Busk tannlæknir lést að morgni 26. desember 74 ára að aldri. Eyjólfur útskrifaðist sem tannlæknir frá Rheinische Friedrich-Wilhelms-Universität í Bonn 1964. Hann starfaði á Íslandi frá 1964 til 1975 en þá fluttist hann til Þýskaland og starfaði þar til ársins 2005.

Eyjólfur lætur eftir sig sambýliskonu og þrjá syni.

Blessuð sé minning hans.  

20.12.2011

Mæðrastyrksnefnd fær tannbursta og tannkrem


Fjölmargir styðja starf mæðrastyrksnefndar sem úthlutar nú matvælum og ýmsum smávörum fyrir jólin. Sérstök jólaúthlutun er fastur liður í starfseminni og hefur hún síðastliðin ár verið í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða kross Íslands. Það var gleðileg stund þegar Kristín Heimisdóttir úr stjórn Tannlæknafélags Íslands og Anný Antonsdóttir framkvæmdastjóri færðu Ragnhildi G. Guðmundsdóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar, að gjöf 1500 tannbursta og tannkrem þann 19. desember síðastliðinn. Hjá mæðrastyrksnefnd starfa þakklátar óeigingjarnar konur sem vinna einstakt starf og óskar Tannlæknafélagið þeim, skjólstæðingum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári."

18.12.2011

Ekki treysta hverjum sem er fyrir tönnunum þínum.

9.12.2011

Tannlæknafélagið ítrekar viðvaranir vegna tannlýsinga ófaglærðra aðila þar sem notuð eru sterk tannlýsingarefni

Af gefnu tilefni og vegna fullyrðinga í fjölmiðlum í dag þess efnis að ekki sé verið að nota 16% vetnisperoxíð við tannlýsingu hjá ungu fólki, er rétt að benda á upplýsingar á heimasíðu viðkomandi aðila en þar er sýnt hvernig notað er vetnisperoxíð með áðurnefndum styrkleika.

Hér má sjá mynd af heimasíðunni.

7.12.2011

Ólögleg tannhvíttunarefni í notkun

nánar

Öll markaðssetning, notkun og sala snyrtivara sem ekki uppfylla kröfur snyrtivörureglugerðarinnar er ólögleg.

Umhverfisstofnun hefur heimildir fyrir því að á tannhvítunarstofum sé verið að nota tannhvítunarefni með allt að 16% vetnisperoxíði (H2O2) eða ígildi þess, en þessi efni eru ólögleg á markaði.

Fram kemur á vef stofnunarinnar að samkvæmt reglugerð um snyrtivörur megi eingöngu vera á markaði hér á landi tannhvítunarefni sem innihaldi að hámarki 0,1% vetnisperoxíðs eða ígildi þess í öðrum efnum. Almennt sé talið að sá styrkur dugi ekki til tannhvítunar að neinu marki.

„Tannhvítunarefni sem eru á markaði og eru notuð sem eru sterkari en ofangreint eru samkvæmt þessu ólögleg á markaði,“ segir Umhverfisstofnun.

Þá segir að tannhvítunarstofur séu starfsleyfisskyldar hjá Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga. Þær megi ekki starfa án slíks leyfis.

Bent er á að nýlega hafi tekið í gildi Evrópusambandinu ný tilskipun sem heimili notkun á tannhvítunarefni með allt að 6% vetnisperoxíði eða ígildi þess. Markaðssetning og notkun sé þó háð þeim skilyrðum að fyrsta notkun slíkra efna sé ávallt undir eftirliti þess sem hafi sérkunnáttu og leyfi til starfa við tennur fólks, s.s. tannlæknum.

„Tilskipun þessi hefur enn ekki verið innleidd á Íslandi þannig að ofangreindar reglur varðandi 0,1% innihald vetnisperoxíðs eða ígildi þess í snyrtivörum, gilda hér þangað til. Öll markaðssetning, notkun og sala snyrtivara sem ekki uppfylla kröfur snyrtivörureglugerðarinnar er því ólögleg,“ segir Umhverfistofnun.

7.12.2011

Ránstannlæknir játar- Gunnar Rósarsson

7.12.2011

Yfirlýsing frá Tannlæknafélagi Íslands

Tannlæknafélag Íslands varar eindregið við tannlýsingarmeðferð sem veitt er af ófaglærðum einstaklingum.  Í umfjölllun um þessa meðferð í fjölmiðlum undanfarið er ljóst að verið er að nota mjög sterk tannlýsingarefni sem tannlæknar geta með engu móti mælt með að séu notuð.  Þessi efni geta verið stórskaðleg tönnum og tannholdi.  Við meðferðina er auk lýsingarefnis notað ljós og meðferðin nefnd „leiser-tannhvíttun“.  Gefið er í skyn að ljós þetta ”virkji” lýsingarefnin.  Það er alveg ósannað að ljós þetta auki á virkni efnanna, þvert á móti eru vísbendingar um að ljósið gefi frá sér hita sem getur valdið varanlegum skaða á kviku tanna. TFÍ bendir einnig á að  “tannhvíttunarfræðingur” er ekki til sem starfsheiti. Það nýtur ekki lögverndar og engar kröfur eru gerðar um menntun eða próf til þess sem það notar.  Stjórn Tannlæknafélags Íslands furðar sig á aðgerðarleysi heilbrigðisyfirvalda sem þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar tannlækna hafa ekkert gert til þess að vernda almenning fyrir meðferð af þessu tagi.”

22.11.2011

Sigurður Benediktsson formaður Tannlæknafélagsins skrifar í Fréttablaðið

Sjá grein í Fréttablaðinu 

Hvort heldur ráðherra ákveði að hækka endurgreiðsluskrána um 50%, 70% eða 100% hefði það ekki áhrif á laun tannlæknisins.



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar