Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

20.12.2006

Enn um könnun Lýðheilsustöðvar, svona nú....

Betur má ef duga skal, svarið þessu nú....staðan í dag er:

20.12.2006

Útlendingar sem sjúklingar. Erum við tilbúin?

Það liggur í augum uppi að 13000 útlendingar sem hér starfa þurfa heilbrigðisþjónustu.

19.12.2006

Þetta á enn við.....

Jónsi og Gísli hætta að sinna Carabelli vefnum!  Jú það var fyrir meir en ári síðan en það er eins og menn hafi ekki fattað það...ferð þú á heimasíðuna og segir hinum frá? ÞETTA ER SKYLDULESNING

19.12.2006

Fyrstu tölur !

Nú eru komnar fyrstu tölur úr MUNNÍS rannsókninni. Þær sýna vaxandi tíðni tannskemmda, færri með allar tennur heilar og óviðgerðar, en það versta á eftir að koma fram þegar rtg myndir verða teknar inn í tölurnar

15.12.2006

Lyfjamál á dagskrá

Ný lyfjareglugerð verður að öllum líkum undirrituð af ráðherra í janúar. Tannlæknar eru hvattir til þess að kynna sér vel fyrirlestur Péturs Gunnarssonar lyfjafræðings og skoðasérstaklega kaflann um lyf á stofu.

14.12.2006

Tölvur, lyklaborð og tannlækningar

Hér er komin lausn á algengu vandamáli!

14.12.2006

Lobbýistar gosdrykkjaframleiðenda vinna sigur

Samkvæmt fréttum á mbl.is eru gosdrykkjaframleiðendur í sjöunda himni með lækkun vsk og afnám vörugjalds. Lesið þesa makalausu frétt og þó engin ástæða sé til að hvetja til aukinna eða yfirleitt nokkra ríkisafskipta af einu eða neinu, þá er ljóst að efnafræðikunnátta forstjóranna er vandamál.

13.12.2006

Lög um lækkun vsk og niðurfellingu vörugjalds taka gildi

Lögin koma til með að lækka súrsæta drykki um tugi prósenta því vörugjaldið var 8 kr per litra og vsk var 24,5% en verður 7% og vsk var reiknaður ofaná vörugjaldsverðið þannig að lækkunin er umtalsverð. Formaður sendi athugasemdir í eigin nafni þar sem stjórn hafði ekki ráðrúm til að tjá sig um málið 

13.12.2006

Tannlækningar á Alþingi

Nú ber svo við að tannlækningar hafa verið til umræðu á þrennum vígstöðvum á alþingu

8.9.2006

Nýtt Tannlæknatal 1854-2007

Í tilefni þeirra tímamóta að Tannlæknafélag Íslands verður 80 ára á næsta ári hefur verið ákveðið að ráðast í undirbúning á útgáfu nýs Tannlæknatals, sem leysi af hólmi það rit sem kom út haustið 1997.

Í ritnefnd eiga sæti: Sigurjón Sigurðsson (formaður), Gunnar Rósarsson, Gunnar Þormar og Jónas B. Birgisson.

Ritnefndin hefur samið við Gunnlaug Haraldsson þjóðháttafræðing um að ritstýra verkinu, en hann hefur langa reynslu af samantekt slíkra rita og hafði m.a. á hendi ritstjórn eldri útgáfu (1997) ásamt ritnefnd.

Efnisöflun er komin á fullan skrið með endurskoðun (uppfærslu) eldri æviágripa og útsendingu eyðublaða til þeirra tannlækna sem bæst hafa í hópinn frá og með árinu 1998. Slíkt eyðublað er aðgengilegt á heimasíðu félagsins. Eyðublað

Til fróðleiks skal rifjað upp, að í eldri útgáfu (frá 1997) eru æviágrip alls 385 tannlækna, þar af í sérstökum viðauka 19 erlendra tannlækna af íslenskum uppruna. Frá júní 1998 til þessa dags hafa 48 tannlæknar lokið kandídatsprófi frá Háskóla Íslands og gera má ráð fyrir að 7-10 bætist í þann hóp fram til næsta sumar. Til viðbótar hafa nokkrir tannlæknar lokið próf erlendis, þannig að gera má ráð fyrir að heildarfjöldi æviágripa hinnar nýju útgáfu verði ekki mikið færri en 450.

Allir tannlæknar eru hvattir til að taka vel beiðni ritnefndar og ritstjóra um að senda inn umbeðnar upplýsingar við fyrstu hentugleika, svo að væntingar um farsælan vinnuferil útgáfunnar gangi eftir.

Með góðri félagskveðju,

Sigurjón Sigurðsson,                                                                                     Gunnar Rósarsson,
Gunnar Þormar,
Jónas B. Birgisson



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Júlí 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
    123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar