Fréttir
13.7.2011
Sýning um tannheilsu og tannlæknaminjar í nýbyggingu Lækningaminjasafns
Það skemmist ei tönn... Sjá heimasíðu
Að undanförnu hafa umræður um slæma tannheilsu barnanna okkar verið áberandi. Dökk mynd er dregin upp. Þetta er ástand sem á sér aðdraganda og minnir um margt á tannheilsu á fyrrihluta 20. aldar. Í sýningu Lækningaminjasafns Það skemmist ei tönn... er teflt saman tveimur tímum, hinum sögulega og núinu.
Í gegnum fjölmiðla kynnumst við börnum sem eru löngu hætt að brosa en taka verkjalyf á kvöldin til þess að ná að festa svefn. Við fréttum af því að tannrestar eru dregnar úr börnum í átaksverkefni Tannlæknadeildar Háskóla Íslands og Velferðarráðuneytis.
Sterk tenging er gerð vera milli tannheilsu barna og efnahags foreldranna þeirra. 42% barna á aldrinum 0-17 ára mættu ekki til tannlæknis árið 2010. Þó eru forvarnir besta og ódýrasta vörnin gegn tannskemmdum sem læknar flokka sem ómeðhöndlaðan sjúkdóm. Á sama tíma eykst neysla gosdrykkja og sælgætis. Því er fleygt að 1,2 tonn af sælgæti seljist á einum sólarhring í einni verslun á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er ástand sem á sér aðdraganda. Það minnir um margt á upphafsár 20. aldar. Þá sem nú voru aukin sykurneysla og lélegt aðgengi að tannlæknum talin helsta orsök tannskemmda.
Tveir tannlæknar voru starfandi á Íslandi árið 1910 og tanndráttur algengasta lækningin við tannverk. Ástandið gat aðeins batnað. Mikilvægur áfanga var náð árið 1922 þegar skólatannlækningar hófust í Reykjavík árið 1921. Fjölgun tannlækna og aukið aðgengi um allt land skipti sköpum.
Árið 1996 gáfu niðurstöður 10 ára rannsókna tilefni til bjartsýni. Tannskemmdir barna höfðu á einum áratug minnkað um helming og ástandið á Íslandi farið að líkjast því sem gerist á hinum Norðurlöndunum. En þá voru óveðursskýin tekin að hrannast upp.
Í þessari sýningu Lækningaminjasafns Íslands er teflt saman tveimur tímum, hinum sögulega og núinu. Það er von safnsins að sýningin auki skilning gesta á sögunni og skapi aukna dýpt í umræður dagsins og jafnvel von um bjartari tíma börnunum okkar til handa.
7.6.2011
Skýrsla umboðsmanns barna til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna 2010
Í skýrslu umboðsmannsins til barnaréttarnefndarinnar er aðkoma stjórnvalda að tannheilbrigðisþjónustu barna gagnrýnd og að dregið hafi verið úr kostnaðarþátttöku undanfarin ár,.
7.6.2011
42% af börnum 0-17 ára mættu ekki til tannlæknis 2010
Í nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna á íslandi koma fram upplýsingar um komu barna til tannlækna á Íslandi. Um 42% barna 0-17 ára mættu ekki til tannlækna árið 2010.
28.5.2011
Kerfið nær ekki að útdeila lögbundnum fjármunum til fólks
Frétt í fréttablaðinu á PDF-formi
19.5.2011
Vegna umræðu á Alþingi vill stjórn Tannlæknafélags Íslands að eftirfarandi komi fram
1. TFÍ hefur aldrei og mun aldrei notað börn í kjarabaráttu. Tannlæknar bera hag og heilsu skjólstæðinga sinna fyrir brjósti, sérstaklega barna.
2. Tannlæknafélagið átti frumkvæði að Hjálparvakt árið 2009 sem starfrækt var í samvinnu við Tannlæknadeild Háskóla Íslands. Þar unnu tannlæknar í sjálfboðavinnu og sinntu fjölda barna sem voru í sárri neyð.
3. Lög um sjúkratrygginar sem samþykkt voru á Alþingi árið 2008 gera ekki ráð fyrir því að samið sé við fag- eða stéttarfélög. Lögin voru samþykkt af meirihlutastjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Í umsögn Tannlæknafélagsins um lögin voru gerðar athugasemdir við þetta fyrirkomulag og að ekki skuli vera gert ráð fyrir því að samið sé við Tannlæknafélagið. Samingar náðust árið 2007 við Tannlæknafélagið um gjaldfrjálsar skoðanir en síðan var lögunum breytt og ekki sést að samningaborði þrátt fyrir óskir tannlækna.
4. Á sl. 10 árum hafa eitt þúsund milljónir! af fjárheimildum til tannlækninga ekki verið nýttar þó þörfin hafi svo sannarlega verið til staðar. Þó eru þetta fjármunir sem Alþingi hafði samþykkt með lögum að nota í málaflokkinn.
5. Endurgreiðslur vegna tannlækninga miðast við ráðherragjaldskrá. Gjaldskrá velferðarráðherra hefur ekkert hækkað síðan árið 2004.
19.5.2011
Velferðarráðherra segir tannlækna nota börn í kjarabaráttu.
Ég er orðinn þreyttur á því þegar verið er að nota börn til að berjast endalaust fyrir hagsmunum og kjarabaráttu einstakra starfsstétta,“ sagði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra þegar hann svaraði fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur alþingismanns um tannheilsu barna.
http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?lidur=lid20110519T104707&horfa=1
Mynd












