Munn- og kjálkaskurðlækningar
Sigurjón H. Ólafsson
Sigurjón hefur hætt störfum á tannlæknastofunni Grensásvegi 13, sími 568-5025
Sigurjón H Ólafsson tannlæknir, cand.odont.
Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1963. Sigurjón stundaði tannlæknanám við Háskóla Íslands og útskrifaðist með cand.odont. gráðu árið 1970. Sigurjón stundaði sérfræðinám í munn- og kjálkaskurðlækningum við University of Alabama at Birmingham frá júlí 1972 til júlí 1975.
Sigurjón hóf störf sem munn- og kjálkaskurðlæknir í júlí 1975 ásamt því að vera stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands til 1977, lektor þar frá júlí 1977 til 1993 og skipaður dósent frá 1993.
Sigurjón var í hlutastarfi sérfræðings í munn- og kjálkaskurðlækningum við Landspítalann og Borgarspítalann frá október 1975.
Sigurjón hefur verið virkur félagsmaður í Tannlæknafélagi Íslands og setið þar í stjórn og nefndum.